Innlent | Spursmál | mbl | 29.7.2026 | 21:12 „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB 1.600 greitt atkvæði um aðildarviðræður Segir fiskveiðistefnu ESB hafa brugðist Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi Beint: Fundur Áfram Ísland á Egilsstöðum Aukin andstaða atvinnulífsins við ESB » Fleiri tengdar fréttir Spursmál Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi Af hverju taka við löstunum líka? #133. - Hefði Kerecis orðið til innan Evrópusambandsins? Stjórnmálafólkið okkar í sumarmarineringu Mun erfiðara að eignast húsnæði í Danmörku » Fleiri tengdar fréttir Upptaka evru kallar á aukinn aga á íslenskum vinnumarkaði, að mati Dags B. Eggertssonar, alþingismanns Samfylkingarinnar. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, segir hins vegar villandi að lofa heimilum lægri vöxtum með aðild að Evrópusambandinu án þess að gera jafnframt grundvallarbreytingar á íslenskri hagstjórn. Þau takast á um málið í aukaþætti Spursmála, þar sem rætt er um kosti og galla evru og mögulegrar ESB-aðildar. Ásdís spyr hvernig íslenskt hagkerfi eigi að laga sig að áföllum ef laun halda áfram að hækka mun meira en í evruríkjunum en ekki verður lengur hægt að bregðast við með breytingum á gengi krónunnar. „Hvernig mun aðlögunin eiga sér stað? Hún mun eiga sér stað í gegnum hærra atvinnuleysi eða þá að við neyðumst til að lækka launin okkar. Það eru engar töfralausnir hér,“ segir Ásdís. Dagur hafnar því að nafnlaunalækkanir séu óhjákvæmilegar. „Það þarf ekki að lækka laun. Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði,“ segir hann. Umræðan í þættinum var á köflum býsna fjörug. mbl.is/María Matthíasdóttir Spurður um eigin kjarasamninga Stefán Einar Stefánsson, þáttastjórnandi, spyr þá hvers vegna slíkur agi hafi ekki þegar verið innleiddur. Hann bendir á að Dagur hafi í tíu ár stýrt Reykjavíkurborg, einum stærsta vinnustað landsins, og undirritað þar fjölmarga kjarasamninga. Dagur svarar að fjárfesting, framleiðniaukning og verðmætasköpun hafi staðið undir launahækkunum á því tímabili. Hann viðurkennir þó að aukinn agi sé nauðsynlegur og segir þurfa breiða samfélagslega sátt um breytingar á vinnumarkaðnum. Ásdís segir að þar með sé viðurkennt að ESB-aðild og evra leysi ekki vandann ein og sér. „Það er ekki rétt að við getum lofað þjóðinni lægri vöxtum við það eitt að ganga í Evrópusambandið með óbreytta hagstjórn,“ segir hún. Leiðin að lægri verðbólgu og vöxtum sé ábyrg hagstjórn þar sem ríki, sveitarfélög og aðilar vinnumarkaðarins vinni saman. Verði evran tekin upp án slíkra breytinga muni aðlögunin að hennar mati birtast í auknu atvinnuleysi eða þrýstingi á lækkun nafnlauna. „Það er bara annaðhvort eða. Það er ekki hægt að lofa því að við fáum bara lægri vexti og þannig verði allt í lagi.“ Hægt er sjá þáttinn í heild sinni í skjánum hér að neðan eða á streymisveitum. Tengdar fréttir Ísland og ESB 1.600 greitt atkvæði um aðildarviðræður Segir fiskveiðistefnu ESB hafa brugðist Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi Beint: Fundur Áfram Ísland á Egilsstöðum Aukin andstaða atvinnulífsins við ESB » Fleiri tengdar fréttir Spursmál Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi Af hverju taka við löstunum líka? #133. - Hefði Kerecis orðið til innan Evrópusambandsins? Stjórnmálafólkið okkar í sumarmarineringu Mun erfiðara að eignast húsnæði í Danmörku » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Grindavík hafði betur gegn Leikni „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ Fram valtaði yfir botnlið Vals Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Ekki á förum eftir slæm meiðsli Umræðan Vaxandi vandi ríkisfjármála Evrópu Hvernig metum við það sem skiptir máli? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fer fram á gæsluvarðhald yfir Ming Ting Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár Hafna bótakröfu Hvítrússanna Mest lesið Í gær Í vikunni „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Vaknaði við minka í garðinum Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Þetta er ófremdarástand“ Minkar lausir í Mosfellsdal: Skothvellir heyrast 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? Myndskeið: Refur át lömb skammt frá þjóðveginum Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Hvítrússneskir menn stefna íslenska ríkinu Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet Tóku eftir því við lendingu að maðurinn var horfinn Ming Ting dæmd í 12 ára fangelsi Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt Nýjast á mbl.is » Grindavík hafði betur gegn Leikni „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ Fram valtaði yfir botnlið Vals Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Ekki á förum eftir slæm meiðsli Umræðan Vaxandi vandi ríkisfjármála Evrópu Hvernig metum við það sem skiptir máli? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Þetta er ófremdarástand“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Vaknaði við minka í garðinum Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Þetta er ófremdarástand“ Minkar lausir í Mosfellsdal: Skothvellir heyrast 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? Myndskeið: Refur át lömb skammt frá þjóðveginum Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Hvítrússneskir menn stefna íslenska ríkinu Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet Tóku eftir því við lendingu að maðurinn var horfinn Ming Ting dæmd í 12 ára fangelsi Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt