Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þunnt og þrúgandi loft í Queretaro fyrir leik Íslands

Read Full Article →

Ekki nóg með að öryggisgæsla landsliðsins hefur aukist til muna í tengslum við skotárás hersins á glæpaforingjann El Mencho, sem skotinn var til bana í átökunum, heldur er landsliðið að spila í aðstæðum sem þeir eru ekki vanir, sem er þunna loftið í mikilli hæð. Æfingaleikur Íslands og Mexíkó sem er undirbúningur gestgjafanna fyrir HM fer fram í borginni Queretaro sem er í 2000 metra hæð yfir sjávarmáli. Það þýðir að loftið er þynnra og því erfiðara að anda og líklegra að verða fyrr þreyttur en undir venjulegum kringumstæðum. Samkvæmt vef KSÍ er ljóst að leikmenn finna mikið fyrir þessum óvenjulegu aðstæðum. Leikur Íslands og Mexíkó fer fram að öllu óbreyttu klukkan 02:00 í nótt og er sýndur á Sýn Sport.

Share this article