53% þeirra sem taka afstöðu til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið ætla að segja já á móti 47% sem ætla að segja nei. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar sem Maskína gerði fyrir DV . Afstaðan breytist lítið frá fyrri könnun sem DV birti 13. júní. Þegar allir svarmöguleikar eru bornir saman þá sögðust 13,5% svarenda ekki vita hvað þeir ætluðu að kjósa og 3,8% vildu ekki svara. 43,8% allra svarenda hugðust segja já og 38,9% segja nei. Lítill munur er á afstöðu karla og kvenna. Þegar horft er til búsetu eru Reykvíkingar jákvæðastir í garð aðildarviðræðna, 61,4% þeirra ætla að segja já. Meirihluti íbúa á landsbyggðinni hyggst segja nei. Mest andstaða er á Austurlandi, þar sem 68,2% ætla að segja nei. Mikill munur er á afstöðu ef litið er til stjórnmálaskoðana. 94,7% kjósenda Samfylkingarinnar og 95,8% kjósenda Viðreisnar ætla að segja já. Stuðningur meðal kjósenda þriðja ríkisstjórnarflokksins, Flokks fólksins, er talsvert minni. 53,3% þeirra eru fylgjandi frekari aðildarviðræðum. 91% kjósenda Miðflokksins ætlar að segja nei. Það ætla 86,6% kjósenda Sjálfstæðisflokksins að gera og 76% þeirra sem kjósa Framsóknarflokkinn. Könnun Maskínu fór fram dagana 22.–29. júlí og voru svarendur 2.255. Þar af tóku 1.865 afstöðu.