Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Meta tekur dýfu í kjölfar uppgjörs

Read Full Article →

Hlutabréfaverð Meta hefur lækkað um 9% í viðskiptum fyrir opnun markaða eftir að félagið birti uppgjör sem var undir væntingum markaðarins, m.a. vegna auknum kostnaði. Mark Zuckerberg forstjóri félagsins sagði ástæðuna vera tilraun Meta til að verða leiðandi á gervigreinarmarkaði. Tekjur annars ársfjórðungs voru aðeins yfir væntingum greinenda, en kostnaður og útgjöld jukust um 55% og námu 42 milljörðum dala. Hagnaður dróst saman um 14% og nam 15,8 milljörðum dala, langt undir væntingum greinenda að sögn Financial Times. Meta spáir 61 til 64 milljarða dala tekjum á yfirstandandi ársfjórðungi. Miðpunktur spárinnar er undir væntingum greinenda um 63,1 milljarð dala. Frjálst sjóðstreymi féll um 91% milli ára á öðrum fjórðungi, úr 8,5 milljörðum dala í 784 milljónir dala. Skýringin er gríðarleg fjárfesting í innviðum fyrir gervigreind. Lækkun hlutabréfanna eftir lokun markaða stefndi í að þurrka út meira en 100 milljarða dala af markaðsvirði Meta þar sem fjárfestar velta fyrir sér hvort gervigreindarfjárfestingar Meta muni skila sér. Zuckerberg sagði fjárfestingarnar í gervigreind nú hraða þróun í öllum helstu þáttum kjarnastarfsemi Meta, meðal annars auglýsingakerfum og meðmælavélum fyrir efni. Hann lýsti framtíðarsýn þar sem notendur fá persónulega gervigreindarfulltrúa (e. AI Agents) sem sinna verkefnum allan sólarhringinn, til dæmis tengdum heilsu, áhugamálum, fjármálum og starfsframa. Slíkir fulltrúar yrðu grunnur að næstu vörum og tekjulindum fyrirtækisins. Meta hefur varið milljörðum dala í gagnaver og ráðið dýra sérfræðinga í gervigreind. Fyrirtækið uppfærði fjárfestingarspá ársins í 130 til 145 milljarða dala og hækkaði neðri mörk útgjaldaspárinnar. Heildarútgjöld ársins eru nú áætluð 165 til 169 milljarðar dala. Zuckerberg sagði stóran hluta reikniafls Meta munu knýja eigin líkön og vörur en fyrirtækið gæti einnig selt gagnaversgetu. Meta á í viðræðum um að leigja út reikniafl til Anthropic í samningi sem gæti numið allt að 10 milljörðum dala.

Share this article