Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Áhöfn Bandero hunsaði Gæsluna og skipið tekið

  • What: A vessel named Bandero was seized by Icelandic authorities.
  • Impact: Related to a protest against whaling.
Read Full Article →

Skipstjóri skipsins Bandero sem hingað er komið til að trufla hvalveiðar og vekja á þeim athygli var handtekinn í gærkvöldi og skipið fært til hafnar eftir að hafa nálgast hvalveiðiskipið Hval 9 innan landhelgi Íslands. Farið er yfir atburðarásina frá sjónarhóli Landhelgisgæslunnar í færslu á Facebook seint í gærkvöldi. Fram kom á vef Fiskifrétta í gær að miðað við stöðuna 28. júlí hefði verið veiddar 29 langreyðar af 150 dýra kvóta. Áhöfnin á Hval 9 taldi skipinu ógnað „Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru um borð í Bandero, skip Paul Watson samtakanna, í kvöld og tóku yfir stjórn skipsins. Áhöfnin á Hval 9 óskaði eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar fyrr í kvöld þar sem áhöfnin taldi öryggi sínu ógnað auk þess sem skipstjóri Bandero hlýddi ekki fyrirmælum Landhelgisgæslunnar. Skipstjóri Bandero var handtekinn og skipið fært til hafnar í Reykjavík,“ segir Landhelgisgæslan. Stefndi í átt að Hval 9 Þá er rakið að á sjötta tímanum í gær hafi stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fengið tilkynningu um að Bandero hefði siglt inn fyrir 12 sjómílna landhelgi Íslands og stefndi þá í átt að hvalveiðiskipinu Hval 9. Áhöfnin á Hval 9 hafi tilkynnt Landhelgisgæslunni að skipinu hefði verið ógnað. Skipuðu áhöfn Bandero að yfirgefa íslenska landhelgi „Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar skipuðu áhöfn Bandero að yfirgefa íslenska landhelgi en engin svör bárust frá skipinu. Þá hélt þyrla Landhelgisgæslunnar, sem var á eftirlitsflugi, þegar í stað á vettvang og bað áhöfn Bandero að yfirgefa svæðið en við því var ekki orðið,“ segir í færslunni á Facebook. Samhliða þessu hafi áhöfnin á varðskipinu Freyju verið kölluð út. Hlýddi ekki fyrirmælum Landhelgisgæslunnar „Þegar varðskipið kom á staðinn skömmu síðar var skipstjóra Bandero fyrirskipað að stöðva vélar skipsins, en skipstjóri Bandero hlýddi ekki fyrirmælum Landhelgisgæslunnar. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þá kölluð út til að flytja sérsveit ríkislögreglustjóra um borð í varðskipið Freyju og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar hélt á vettvang á aðgerðabátum,“ segir Gæslan. Dómsmálaráðuneytið upplýst á öllum stigum Á tólfta tímanum í gærkvöldi eru sérsveitarmenn frá ríkislögreglustjóra og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar sögð hafa farið um borð í Bandero, handtekið skipstjóra þess og tekið yfir stjórn skipsins. Bandero var síðan fært til hafnar í Reykjavík en gert er ráð fyrir að skipið komi til Sundahafnar síðar í kvöld. Aðgerðin hafi verið unnin í náinni samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra auk þess sem dómsmálaráðuneytið hafi verið upplýst á öllum stigum hennar.

Share this article