Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða

Read Full Article →

Innlent | mbl | 31.7.2026 | 21:15 Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Ásgeir Pétursson, eigandi Dalsbús í Mosfellsdal. mbl.is/Árni Sæberg Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Minkar lausir í Mosfellsdal Minkur faldi sig undir húddi: „Þetta var hræðilegt“ Skaðar málstað dýraverndar „Minkurinn tekur sér ekki frí yfir versló“ Þrjótarnir skildu ekki eftir bréf Aðgerðum í Mosfellsdal miðar vel áfram » Fleiri tengdar fréttir Minkabóndinn á Dalbúi, Ásgeir Pétursson, segist hafa afhent lögreglunni handskrifaðan miða af vettvangi. Hann segir langlokurunur talna hafa verið skrifaðar á eitt af búrkortunum með rauðu tússi. Enginn texti hafi hins vegar verið skrifaður á hann. Þrjótarnir sem brutust inn í Stjörnubú fyrr í sumar skildu eftir bréf með afsökunarbeiðni á sínum gjörningi og stefnuyfirlýsingu í nafni dýraverndar. Matvælastofnun segist munu kæra málið til lögreglu að öllum líkindum. Lögreglan hefur varist allra fregna af rannsókn sinni á málinu en mbl.is hefur ekki náð tali af henni vegna þess í dag. Hildur Rún Björnsdóttir lögreglufulltrúi sagði við mbl.is í gær að hún gæti ekki sagt neitt til um það hvort innbrotin í Reykjabú, Stjörnugrís og Dalsbú tengdust en að óhjákvæmilega skyti þeirri hugmynd upp í kollinum. Ásgeir segir að minnsta kosti tíu þúsund minka hafa sloppið úr minkabúi hans á aðfaranótt miðvikudags. Hann telur að um 5 til 6 manns hafi verið þar að verki og að brotið hafi verið þaulskipulagt. Bóndinn í Mosfellsbæ segist ekki ætla að lúffa fyrir glæpamönnum. Frétt af mbl.is Skaðar málstað dýraverndar Frétt af mbl.is „Minkurinn tekur sér ekki frí yfir versló“ Frágangur var í fulum gangi á Dalsbúi í Mosfellsdalnum í gær. mbl.is/Hákon Afhenti lögreglu miða „Ég lét lögguna hafa eitthvað þarna. Það skildi enginn neitt í þessu. Þetta voru einhverjar langlokutölur. Ég veit ekkert hvað þarna var á ferðinni. Þetta var skrifað á eitt af búrkortunum sem notuð eru á dýrin, aftan á það bara.“ Þetta segir Ásgeir minkabóndi um rauðtússuðu tölurnar. Hann segir engan skrifaðan texta hafa verið skrifaðan á búkortið. „Það voru einhver svona smá merki þarna í endann á einni tölunni og svoleiðis, eins og þegar menn eru að teikna broskalla og svoleiðis dót.“ Ásgeir segir tölurnar helst minna á erlend símanúmer. „Eins og ef þú ætlaðir að flytja til Finnlands, þrír fimm átta eitthvað, svo kom númer og eitthvað annað þar fyrir aftan. Þetta var svolítið skrýtið, skrifað með rauðu tússi,“ segir Ásgeir en + 358 er talnarunan sem slegið er inn á talnaspjaldið áður en hringt er til Finnlands. Það kannaðist enginn við þetta. Þannig að þetta er eitthvað skrýtið sko. Og við vitum ekkert um þetta,“ svarar Ásgeir og segist ekki vita hvað upplýsingarnar á miðanum eigi að þýða. Frétt af mbl.is Þrjótarnir skildu ekki eftir bréf Tvö kör eru full af dauðum minkum að sögn eiganda minkabúsins. mbl.is/Árni Sæberg Fimm hundruð minka skotnir Þið hafið engan grunaðan enn þá, er það ? „Nei.“ „Það er búið að skjóta hérna að minnsta kosti 400 – 500 minka. Ég er ekki farinn að telja þetta. Það eru tvö kör full hérna úti og dýr sem deyja hérna inni á búinu sem drepast úr þorsta, hungri eða einhverju.“ „Við erum að elta hérna tíu þúsund minka. Þannig að þú gerir þér grein fyrir því að örfáir menn gera þetta ekki á nokkrum mínútum,“ segir Ásgeir en hann telur innbrotið hafa verið þaulskipulagt og að þar hafi verið 5 til 6 menn á ferðinni. Þeir hafi lokið verkinu á skömmum tíma. mbl.is/Árni Sæberg Gengur ekkert að ná í skottið á þeim? „Mönnunum? Ég veit ekkert um það. Það hefur gengið vel að ná í skottið á minkunum hérna. Við erum að vinna í því og ég er með fullt af fólki sem er að hjálpa mér,“ segir Ásgeir. „Þetta er alveg gríðarleg vinna og þetta er algjört tjón á búinu, algjört.“ Þið munuð ekki leggja árar í bát eða hvað? „Ég hef ekki gert það. Ég læt ekki svona fólk drepa mig. Þetta eru glæpamenn og ég ætla ekki að lúffa fyrir glæpamönnum,“ bætir síðasti minkabóndi Íslands við. Frétt af mbl.is Segir málið óvenjulegt: Kæra á leiðinni MAST kærir Fram hefur komið að MAST hyggist kæra atvikið til lögreglu. Stofnunin hefur óskað eftir lögregluskýrslu og bíður hennar nú áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið. „Við erum búin að kalla eftir lögregluskýrslu og leggjum þá mat á hana en mér finnst afar líklegt að það verði kært.“ Þetta segir Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, í samtali við mbl.is í dag. MAST kærði í málum Reykjabús og Stjörnugríss á grundvelli brota á dýravelferð rétt eins og hún hyggst gera í þessu máli. Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir hjá Mast. Ljósmynd/Aðsend Tengdar fréttir Minkar lausir í Mosfellsdal Minkur faldi sig undir húddi: „Þetta var hræðilegt“ Skaðar málstað dýraverndar „Minkurinn tekur sér ekki frí yfir versló“ Þrjótarnir skildu ekki eftir bréf Aðgerðum í Mosfellsdal miðar vel áfram » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Risahringar kynda undir brúðkaupsorðróm Ákærðir fyrir árás á stuðningsmann Manchester United Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Tvírukkanir hafa verið leiðréttar „Guð gaf okkur gott veður“ Umræðan Hindranir og hagvöxtur í litlu hagkerfi Fullveldi og fjárhagslegt sjálfstæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Minnast Gunnars: „Maður hélt niðri í sér andanum“ „Minkurinn tekur sér ekki frí yfir versló“ „Verðum bara eitthvað peð þegar bjátar á“ Aldrei liðið að öryggi manna að störfum sé ógnað Mest lesið Í gær Í vikunni Saklaus læknatími endaði með innlögn Minkur faldi sig undir húddi: „Þetta var hræðilegt“ Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Var í afneitun vegna versnandi heilsu Inngrip auðveld innan landhelgi Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Erfitt rekstrarumhverfi: Aflýsa öllu áætlunarflugi Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Myndir: Bandero kominn til hafnar Myndskeið: „Nánast eins og í James Bond-mynd“ Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Nýjast á mbl.is » Risahringar kynda undir brúðkaupsorðróm Ákærðir fyrir árás á stuðningsmann Manchester United Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Tvírukkanir hafa verið leiðréttar „Guð gaf okkur gott veður“ Umræðan Hindranir og hagvöxtur í litlu hagkerfi Fullveldi og fjárhagslegt sjálfstæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skipverjum haldið í Bandero fram yfir helgi Enginn í haldi: Tilkynnt um minka í 5 km fjarlægð Myndskeið: Senda herlið til Ceuta vegna flóttafólks Aldrei liðið að öryggi manna að störfum sé ógnað Mest lesið Í gær Í vikunni Saklaus læknatími endaði með innlögn Minkur faldi sig undir húddi: „Þetta var hræðilegt“ Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Var í afneitun vegna versnandi heilsu Inngrip auðveld innan landhelgi Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Erfitt rekstrarumhverfi: Aflýsa öllu áætlunarflugi Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Myndir: Bandero kominn til hafnar Myndskeið: „Nánast eins og í James Bond-mynd“ Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“

Share this article