Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma

Read Full Article →

Innlent | mbl | 31.7.2026 | 23:25 | Uppfært 23:47 Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Mikil óreiða fylgir hverju holli af ferðamönnum sem koma inn á móttökusvæðið í Keflavík en þar mátti ekki sjá til starfsfólks að bjóða upp á aðstoð. mbl.is/Markús Ívar Halldórsson Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Bílstjórar hafa í sumar þurft að eiga við gríðarlegar tafir eftir farþegum á Leifsstöð vegna nýs landamærakerfis. Margir hafa lýst yfir áhyggjum af því hvernig ástandið verði í kringum sólmyrkvann í ágúst. Nýtt landamærakerfi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur verið mikið til umræðu upp á síðkastið vegna ógnarlangra raða sem blasað hafa við komufarþegum sem koma frá löndum utan Schengen-svæðisins. Þeir farþegar þurfa nú að vera skráðir rafrænt við komuna til landsins. Tekin eru af þeim fingraför og andlitsmynd og upplýsingarnar geymdar í sameiginlegum evrópskum gagnagrunni í þrjú ár. Fyrr á árinu skrifuðu Evrópudeild Alþjóðasamtaka flugvalla, ACI, Alþjóðasamtök flugfélaga, IATA, og Samtök evrópskra flugfélaga, A4E, opið bréf til Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, þar sem varað var við því að innleiðing kerfisins kynni að valda alvarlegum truflunum yfir háannatímann í sumar. Nú er raunin sú að margoft í sumar hafa myndast gríðarlegar biðraðir við landamæraeftirlit á flugvellinum. Að miklu leyti til að sjálfvirkir „kíoskar“ svokallaðir hafa enn ekki verið teknir í notkun en til stendur að fara í það verkefni þegar líður á haustið. Innleiðing kerfisins er sögð kosta um þrjá milljarða króna. Frétt af mbl.is Upplýsingagjöf hefði mátt vera betri Frétt af mbl.is Nýtt umhverfi á landamærum Íslands Ekki er laust við vanda við leigubílaröðina en þar virðist einnig vanta starfsmann til sjá til þess að ferlið gangi smurt fyrir sig. mbl.is/Markús Ívar Halldórsson Stefnir í fjögurra til fimm tíma bið í kringum sólmyrkvann Blaðamaður mbl.is fór á vettvang í Leifsstöð og ræddi þar við leigubílstjóra, ferðamenn og einkaaðila sem sinna skutlþjónustu fyrir ferðamenn. Einar Hafsteinn Árnason, meðeigandi í akstursþjónustufyrirtæki, segir vandamálið á Keflavíkurvelli fjölþætt. Fyrir utan vandamál sem skapast hafa vegna nýja landamærakerfisins er verulega ábótavant utanumhald um leigubílaþjónustu við flugvöllinn. Einar segir það hafa verið algengt vandamál í sumar að bílstjórar bíði í yfir 90 mínútur eftir farþegum utan Schengen-svæðisins en oft komi þó fyrir að biðin teygi sig yfir á fjórða klukkutímann. Hann bætti við að ástandið eins og það var þegar blaðamaður mbl.is var á svæðinu væri heldur rólegt miðað við það sem sést hafi í sumar, samt sem áður streymdu ferðamenn inn á móttökusvæðið í Leifsstöð sem beðið höfðu í einn og hálfan klukkutíma við landamæraeftirlitið. „Það er mjög rólegt núna, samt er eins og hálfs klukkutíma bið eftir farþegum, á stórum skipadögum getur verið þriggja tíma bið eftir farþegunum,“ segir Einar og vitnar þá í farþega sem koma til landsins til þess að komast í skemmtiferðaskip við Íslandsstrendur. Kostnaðurinn af þessari töf lendi ekki á neinum nema fyrirtækjum í ferðamannaiðnaðinum og leigubílstjórum. Enn fremur segist Einar hugsi yfir því hvernig ástandið verði á flugvellinum þegar fólk tekur að streyma til landsins í miklum mæli í kringum sólmyrkvann í ágúst. „Þá verður sennilega fjögurra, fimm tíma bið hérna.“ Aragrúi af leigubílum bíða fyrir utan Leifsstöð, segja bílstjórar sem rætt var við að óljóst geti verið hvar megi og megi ekki leggja bílunum. Aðrir bíða á bílastæði enn lengra í burtu og fylgjast með gangi mála á vefmyndavél áður en þeir koma sér svo í biðröðina við stöðina. mbl.is/Markús Ívar Halldórsson Langar bara að komast upp á hótel Tatiana Sardos, ljósmyndakona frá Kanada, er hingað komin til landsins til þess að mynda brúðkaup. Hún segist hafa beðið í röð við landamæraeftirlitið í um einn og hálfan klukkutíma. Hún hafi þó verið viðbúin því og ekki fundist það vera stórmál. Þá hafi hún tekið eftir því að „kíoskarnir“ hefðu ekki enn verið teknir í gagnið. Cal Halman, annar ljósmyndari en þó frá Bandaríkjunum, er kominn til Íslands til að „taka myndir af fallegu náttúrunni og sólmyrkvanum“. Hann segir að ekki hefði spillt fyrir að hafa fleiri landamæraverði við eftirlitið en hann hafi þó verið heppinn og komist framarlega í röðina þegar opnað var fyrir nýjan eftirlitsbás. Eldri hjón sem komu til landsins í morgun frá San Diego segjast hafa beðið í rúman klukkutíma við landamæraeftirlitið. „Við erum gömul og við erum þreytt en nú langar okkur bara að ná í leigubíl og komast upp á hótel,“ sögðu hjónin. Töfin hafi þó ekki truflað þau mikið og voru þau mjög spennt að hefja leiðangur sinn um Ísland. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka Myndir: Þjóðhátíð sett í veðurblíðu Catherine vildi ekki fylgja foreldrunum í dauðann Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma KSÍ fékk bréfið um miðja nótt Umræðan Hindranir og hagvöxtur í litlu hagkerfi Fullveldi og fjárhagslegt sjálfstæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hvalur 9 virðist stefna aftur út á haf Inngrip auðveld innan landhelgi Saklaus læknatími endaði með innlögn Aldrei liðið að öryggi manna að störfum sé ógnað Mest lesið Í gær Í vikunni Saklaus læknatími endaði með innlögn Minkur faldi sig undir húddi: „Þetta var hræðilegt“ Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Var í afneitun vegna versnandi heilsu Inngrip auðveld innan landhelgi Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Erfitt rekstrarumhverfi: Aflýsa öllu áætlunarflugi Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Myndir: Bandero kominn til hafnar Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Nýjast á mbl.is » Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka Myndir: Þjóðhátíð sett í veðurblíðu Catherine vildi ekki fylgja foreldrunum í dauðann Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma KSÍ fékk bréfið um miðja nótt Umræðan Hindranir og hagvöxtur í litlu hagkerfi Fullveldi og fjárhagslegt sjálfstæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stofnuðu skipverjum í hættu og sýndu mótþróa Aldrei liðið að öryggi manna að störfum sé ógnað Inngrip auðveld innan landhelgi Ríki ESB á móti varanlegum undanþágum Mest lesið Í gær Í vikunni Saklaus læknatími endaði með innlögn Minkur faldi sig undir húddi: „Þetta var hræðilegt“ Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Var í afneitun vegna versnandi heilsu Inngrip auðveld innan landhelgi Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Erfitt rekstrarumhverfi: Aflýsa öllu áætlunarflugi Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Myndir: Bandero kominn til hafnar Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Gunnar Þórðarson er látinn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“

Share this article