Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 9 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Umferð farin að þyngjast við Selfoss Ásrún Aldís Hreinsdóttir Umferð við Selfoss er farin að þyngjast og bílaraðir eru inn í bæinn. Magnús Ragnarsson aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi segir að núna um hádegi hafi umferðin farið að þyngjast, hann þó segir að síðustu daga hafi umferðin gengið greiðlega í gegnum bæinn. Bílaröðin nær langt undir Ingólafsfjall. Vegfarendum er bent á að fara um Þrengslin til þess að forðast langar biðraðir í gegnum Selfoss. Hægt er að fylgjast með umferðinni í vefmyndavélumVegagerðarinnar. Vegagerðin Fyrir 45 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður „Þá segi ég ekki nei, mig langar ekkert að tala við þig!“ Forstjóri Kemi segir að ekki megi bjóða honum neinn samning um inngöngu Íslands í ESB sem hann féllist á. Stjórnarmaður í hreyfingunni Já til að sjá segir umræðuna einkennast af mikilli óreiðu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Reyndi að gera minna úr sínum hlut í andláti dótturinnar Héraðsdómur Reykjavíkur segir Ming Ting Mancel hafa verið virkan þátttakanda í að ráða dóttur sinni bana á Edition-hótelinu síðasta sumar. Framburður hennar hafi verið á reiki og hún reynt að gera lítið úr sínum hlut fyrir dómi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Fjórtán ábendingar um minka á ferð frá hádegi í gær Fjórtán minkar hafa sést síðan í gær, þar af þrír í Mosfellsbæ og einn sem reyndist koma úr Dalsbúi, í Mosfellsdal. Yfirdýralæknir segir tiltölulega auðvelt að þekkja villta minka frá eldisminkum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Sex fíkniefnamál á Þjóðhátíð Erla María Markúsdóttir Frá Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í gærkvöld. Aðsend / JonfromIceland Sex minniháttar fíkniefnamál hafa komið upp á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Í tilkynningu lögreglunnar í Vestmannaeyjum segir að lögreglan haldi úti öflugu fíkniefnaeftirliti um helgina. Nokkrum var veitt aðstoð í gærkvöld og nótt vegna ölvunar. „Þrátt fyrir það er ekki annað að sjá en gestir á Þjóðhátíð séu komnir til þess að skemmta sér og öðrum,“ segir í tilkynningu lögreglu. Sólin leikur við Þjóðhátíðargesti og mun gera áfram. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Það er dýrmætt fyrir alla að vera í svona starfi“ Sigríður Birna Sigvaldadóttir er sjálfboðaliði ársins hjá Rauða krossinum. Hún starfar með föngum í afplánun og segir starfið afar gefandi. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Spánn Spánverjar gagnrýna viðbrögð annara Schengen ríkja vegna Ceuta Spænsk stjórnvöld gagnrýna viðbrögð Ítala og annarra ríkja í Schengen samstarfinu vegna atburðanna í spænsku hólmlendunni Ceuta á norðurodda Marokkó. Stjórnvöld á Ítalíu ákváðu í gær að afnema tímabundið frjálsa för milli ítalíu og Spánar. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Skemmtanahald gengið vel fyrir sig fyrsta daginn Fyrsta nótt verslunarmannahelgarinnar var nokkuð stórtíðindalaus hjá lögreglunni. Skemmtanahald gekk vel fyrir sig og almennt lítið um útköll. Lögregla hafði þó afskipti af nokkrum vegna ölvunarástands. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær Fluttur með þyrlu á bráðamóttöku eftir fall í Vestmannaeyjum Maður var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans í gærkvöld með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir fall í Vestmannaeyjum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Áhöfn Bandero ekki úrskurðuð í gæsluvarðhald en fer hvorki lönd né strönd Lögregla fer ekki fram á gæsluvarðhald yfir áhöfn Banderos en hefur farið fram á brottvísun og endurkomubann yfir henni. Samgöngustofa afturkallaði haffærni skipsins og þarf áhöfnin því að halda kyrru fyrir um borð þar til annað hefur verið ákveðið. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll á Austfjörðum Búast má við hvössum vindstrengjum við fjöll á sunnanverðum Austfjörðum fram til hádegis á morgun. Hviður geta verið varasamar fyrir ökutæki og tengivagna sem taka á sig mikinn vind. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Lundum á norsku eyjunni Røst fækkaði um fimmtung milli ára Lundum á norsku eyjunni Røst hefur fækkað um fimmtung á einu ári. 88% stofnsins hefur horfið á síðustu fimmtíu árum. Sérfræðingar binda vonir við að sumarið boði betri tíma. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rússland Eldur kviknaði í dómkirkju heilags Basils Brynja Dögg Friðriksdóttir Wikimedia Commons / Yuriy D.K. Eldur kviknaði í dómkirkju heilags Basils við Rauða torgið í Moskvu í nótt. Rússneska fréttastofan TASS segir að eldurinn hafi kviknað í skrifstofu á 1. hæð þar sem eldur komst í persónulegar eigur og húsgögn. Eldurinn náði ekki að breiðast út og enginn slasaðist. Búið er að slökkva eldinn en óljóst er um eldsupptök. Dómkirkja heilags Basils á Rauða torginu er eitt helsta kennileiti Moskvuborgar. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Níu drepnir og 28 særðust í flugskeytaárás á Kyiv Brynja Dögg Friðriksdóttir Rússar gerður árásir á fimm hverfi Kyiv í nótt. AP / Dan Bashakov Að minnsta kosti níu voru drepnir og 28 eru særðir eftir árásir Rússa á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í nótt. Fjögur börn eru meðal látinna. Flugskeytaárásir voru gerðar á fjölbýlishús og aðrar byggingar í fimm hverfum borgarinnar. Búið er að bjarga 105 manns úr húsunum. Blaðamenn AFP greindu frá því að þeir hafi heyrt yfir tíu sprengingar í röð. Þetta er önnur stóra árásin sem Rússar gera á borgina á tveimur sólahringum. Varnarmálaráðuneyti Rússa sagði í morgun að árásir næturinnar hefðu beinst að hernaðarlegum innviðum í borginni og dreifingarstöðvum. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Árás á tankskip nærri Óman Brynja Dögg Friðriksdóttir Flutningaskip á Hormússundi nærri ströndum Dibba Al Fujairah í Sameinuðu arabísku furstadæmunum 21. júlí sl. EPA / Stringer Árás var gerð á tankskip úti fyrir ströndum Lima í Óman í nótt. Tjón varð á vélarrými skipsins en bresk siglingastofnun segir að enginn hafi slasast í árásinni. Íranar hafa stöðvað nær allar skipasiglingar um Hormússund og skip þurfa bæði leyfi Írana og greiða tolla til að sigla um sundið. Íranski byltingarvörðurinn hefur ráðist á og stöðvað fjölda skipa á siglingu. Íranar halda því fram að þeir hafi náð fullri stjórn á Hormússundi. Siglingaeftirlitsfyrirtækið Kpler segir í færslu á X að dregið hafi verulega úr siglingum um sundið. 1. ágúst 2026 kl. 4:13ERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Miklir þurrkar í Englandi og Wales Fjórða hitabylgja sumarsins gekk yfir Bretland í vikunni. Hættan á skógareldum hefur aukist eftir langvarandi þurrka undanfarið. Vatnsyfirborð áa hefur lækkað mikið og nokkur fyrirtæki hafa sett á tímabundið vatnsbann. 1. ágúst 2026 kl. 2:35ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Mótmælendur krefjast þess að Fedorov verði aftur varnarmálaráðherra Þúsundir mótmælenda komu saman í Kyiv í gær til að krefjast þess að Mykhailo Fedorov yrði aftur settur í embætti varnarmálaráðherra. Úkraínuforseti hefur boðið honum aðrar stöður en Fedorov vill aðeins embætti varnarmálaráðherra. 1. ágúst 2026 kl. 0:21ÍÞRÓTTIR Fótbolti Hættur við að selja hlut í FIFA Forseti FIFA hefur ákveðið að hætta við hugmyndir sínar um að selja hlut í keppnum FIFA. Þessar fyrirætlanir voru harðlega gagnrýndar. 31. júlí 2026 kl. 23:00ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Fella niður ákæru gegn fyrrverandi Ólympíufara vegna gallaðra framkvæmda Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur fellt niður ákæru gegn fyrrverandi Ólympíufaranum David Hearn sem var sakaður um að skemma Spegiltjörnina við Lincoln-minnisvarðann. Ný gögn sýna að skemmdirnar séu afleiðing af gölluðum frágangi verktaka. 31. júlí 2026 kl. 22:04INNLENDAR FRÉTTIR Menning „Við hvetjum stráka til að koma að æfa dans“ Í Listdansskóla Íslands í Reykjavík hefur dansinn dunað undanfarna viku. Þar hafa balletnemendur frá Norðurlöndunum verið saman á námskeiði og dansað af hjartans lyst. 31. júlí 2026 kl. 21:21INNLENDAR FRÉTTIR Ferðalög Óvenjulítil umferð á stærstu ferðahelgi ársins Umferðin út úr Reykjavík fyrir verslunarmannahelgina hefur gengið óvenju vel miðað við að stærsta ferðahelgi ársins sé að ganga í garð. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir ferðavenjur borgarbúa hafa breyst á síðustu árum. 31. júlí 2026 kl. 21:02INNLENDAR FRÉTTIR Hvalveiðar Fara fram á brottvísun yfir áhöfn Bandero – ólíklegt að farið verði fram á gæsluvarðhald Lögregla hefur farið fram á brottvísun og endurkomubann yfir skipverjum á áhöfn Bandero. Aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu segir ólíklegt að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir áhöfninni. 31. júlí 2026 kl. 20:51INNLENDAR FRÉTTIR Peningar Tvöfaldar færslur á greiðslukortum leiðréttar Tvöfaldar færslur á greiðslukortum hafa nú verið leiðréttar. Sumar færslur voru tvíbókaðar á greiðslukortum hjá Landsbanka og Arion banka í dag vegna villu í kerfum Rapyd á Íslandi. 31. júlí 2026 kl. 19:47ÍÞRÓTTIR Fótbolti Afstaða KSÍ gagnvart áformum Infantino skýr Stjórn KSÍ fundaði í morgun um áform FIFA um að selja hlut í heimsmeistaramótinu í fótbolta til einkaaðila. Þar var rætt um afstöðu UEFA til málsins. Evrópa muni sniðganga öll mót FIFA nái þetta fram að ganga. 31. júlí 2026 kl. 18:59INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Regnbogafáninn mættur á tröppur Grafarvogskirkju á ný Búið er að mála regnbogafánann aftur á tröppurnar við Grafarvogskirkju. Í byrjun júlí var íslenski fáninn málaður yfir regnbogafána sem prýddi tröppurnar við kirkjuna. 31. júlí 2026 kl. 17:42INNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Niceair flýgur hvorki frá Akureyri í sumar né komandi vetur Ekkert millilandaflug verður á vegum Niceair frá Akureyrarflugvelli fyrr en í fyrsta lagi sumarið 2027. Fyrirtækið ætlaði að hefja flug milli Akureyrar og Danmerkur í febrúar en hætti við þær ferðir. 31. júlí 2026 kl. 17:15ERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Einn handtekinn vegna alvarlegs sjóslyss í Svíþjóð Skipstjóri norsks flutningaskips hefur verið handtekinn vegna alvarlegs sjóslyss við Tjörn í Vestur-Svíþjóð. Mæðgur létu lífið í slysinu og feðgar í sömu fjölskyldu slösuðust alva