Annasamt hefur verið hjá lögreglu og Landhelgisgæslunni síðastliðinn sólarhring. Verið er að yfirheyra áhöfn Banderos á varðskipinu Freyju og á lögreglustöð. Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, telur ólíklegt að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir áhöfninni. Lögregla fer fram á brottvísun og endurkomubann skipverja. „Svo er greinargerð farin frá lögreglunni til Útlendingastofnunar, þar sem við förum fram á að fólkinu verði mögulega í kvöld birt hugsanleg brottvísun með endurkomubanni til tveggja ára.“ Ásgeir segir að það slík ákvörðun sé íþyngjandi. Fjórtán úr áhöfninni eru ekki frá löndum innan Schengen og verði farið að kröfu lögreglu fá þau ekki að koma til neinna Schengen-landa í tvö ár. Hin sjö í áhöfninni fengju ekki að koma til Íslands í tvö ár. Samgöngustofa yfirfór Bandero í dag og Ásgeir segir allt benda til þess að það missi tímabundið haffæri.