Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Mannúðarkrísa í uppsiglingu í Ceuta

  • What: A humanitarian crisis is unfolding in Ceuta with hundreds of migrants from Morocco
  • Impact: Migrants are without water and food
Read Full Article →

Hundruð flóttamanna frá Marokkó eru án vatns og matar í spænsku hólmlendunni Ceuta. Mannúðarkrísa er í uppsiglingu þrátt fyrir að flest flóttafólk hafi snúið aftur til Marokkó. Lífið er smám saman að komast í eðlilegt horf eftir mikinn glundroða og ringulreið síðustu daga. „Farandfólkið hefur verið flutt til, fært nær landamærunum. Miðbærinn er mjög rólegur en þetta hafa verið strembnir dagar,“ sagði íbúi í Ceuta. Yfirvöld hafa komið upp fimm hundruð metra langri flotgirðingu til að koma í veg fyrir að fleira flóttafólk komi til borgarinnar. Móttökustöð fyrir flóttafólk í Ceuta er yfirfull. Þó að flestir hafi snúið aftur til Marokkó neita sumir að fara til baka, og því er mannúðarkrísa í uppsiglingu. „Ég hef ekkert borðað, það er ekkert að hafa, ekkert að drekka. Við eigum erfitt.“

Share this article