Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Milljónafyrirtæki án starfsfólks

Read Full Article →

Gervigreind gerir sífellt fleiri frumkvöðlum kleift að stofna og reka fyrirtæki án starfsfólks, eftir því sem fram kemur í umfjöllun Wall Street Journal . Ný gögn benda til þess að slíkum fyrirtækjum fjölgi hratt, samhliða því sem færri þeirra hyggjast ráða starfsfólk. Greining greiðslumiðlunarfyrirtækisins Stripe bendir til þess að í Bandaríkjunum séu nú þúsundir eins manns fyrirtækja á vettvangi félagsins með yfir eina milljón dala í árstekjur. Fjöldi þeirra tvöfaldaðist á árunum 2023 til 2025, en fyrirtækjum með yfir 10 milljónir dala í tekjur fjölgaði enn hraðar. Samhliða þessu hefur nýskráning fyrirtækja í upplýsingatæknigeiranum aukist verulega. Greining Bank of America Institute á gögnum bandarísku manntalsskrifstofunnar sýnir að umsóknum um stofnun fyrirtækja í geiranum fjölgaði um nær 45% á síðasta ári, á sama tíma og sífellt færri umsækjendur sögðust stefna á að ráða inn starfsfólk. Rannsókn Harvard Business School bendir til þess að þróunin geti haft áhrif á vinnumarkaðinn. Þar reyndust reyndust sprotafyrirtæki með áherslu á gervigreind að jafnaði starfa með um fjórðungi færri starfsmanna en önnur sprotafyrirtæki. Sérfræðingar segja gervigreind hafa lækkað þröskuldinn fyrir stofnun fyrirtækja með því að taka yfir verkefni á borð við forritun, markaðssetningu og þjónustu við viðskiptavini. Á sama tíma gæti tæknin auðveldað samkeppnisaðilum að herma eftir nýjum viðskiptahugmyndum. Áhrif þróunarinnar á atvinnusköpun til lengri tíma eru hins vegar enn óljós.

Share this article