Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Mismunað eftir stöðu foreldra

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 3.8.2026 | 10:55 Mismunað eftir stöðu foreldra Tengsl Ása segir að yfirvöld geri upp á milli ósjálfbjarga barna á grundvelli þeirra aðstæðna sem þau fæðast inn í. Morgunblaðið/Kristinn Setja bókamerki „Rannsóknir á tengslamyndun og mikilvægi tilfinningatengsla milli barns og umönnunaraðila hafa sýnt fram á að góð tengsl fyrstu æviárin leggi grunninn að vellíðan og velferð barna. Fátækt er ekki tilviljanakennd, heldur afleiðing ójöfnuðar og ójöfnuður í lífi barna hefur sterka birtingarmynd í formi fæðingarorlofsgreiðslna,“ segir Ása Díönudóttir félagsfræðingur í samtali við Morgunblaðið. Málefni barna eru Ásu hugleikin. Ása útskrifaðist sem félagsfræðingur frá Háskóla Íslands í vetur og BA-ritgerð hennar fjallaði um mótun barns frá æsku til samfélagslegrar velferðar. Í ritgerðinni snertir Ása meðal annars á hvernig börnum er mismunað eftir stétt og stöðu foreldra í tengslum við fæðingarorlofsgreiðslur. Í ritgerð sinni rifjar Ása upp það stofnanaverk sem var við lýði í Reykjavík á árunum 1949 til 1973. Í þau 24 ár var stofnunum í Reykjavík, svokölluðum vöggustofum, ætlað að taka við ungum börnum mæðra sem ekki sáu sér fært að hafa börnin sín hjá sér sökum mikillar fátæktar eða veikinda. Engin snerting eða nánd var leyfð allan tímann og einungis mátti horfa á börnin úr fjarlægð. Frétt af mbl.is Hagsmunir barna séu ekki í fyrirrúmi Mismunun enn við lýði Rannsókn Reykjavíkurborgar á starfsemi vöggustofanna sýndi fram á að börn sem sett voru á stofnun án samskipta við aðstandendur urðu fyrir alvarlegri vanrækslu á nauðsynlegri örvun til þroska, andlega og líkamlega. Vanrækslan var ekki tilkomin vegna skorts á ást frá umönnunaraðilum heldur vegna skorts á aðgengi að samfélagslegum stuðningi frá yfirvöldum. Ása telur að í ljósi skýrra niðurstaðna á skaðsemi þess að rjúfa tengslamyndum foreldris og barns sé enn verið að mismuna börnum eftir stétt og stöðu foreldris og yfirvöld þurfi að gera betur. Hún segir erfitt að réttlæta það að eitt barn eigi minni rétt til góðrar umönnunar og samvista við sína foreldra en annað. „Þessi mismunun viðgengst enn þann dag í dag. Það er auðvitað merkilegt að regluverkið sé ekki búið að átta sig á þessu. Enn í dag eru börn sem fæðast til fátækra foreldra að fá verri tækifæri til að vera samferða sínum foreldrum og fá þann stuðning sem þau þyrftu. Þarna kemur regluverk fæðingarorlofsins mjög skýrt inn,“ segir Ása. Ása Díönudóttir. Ljósmynd/Aðsend Launatengdar greiðslur skapa misrétti Samkvæmt upplýsingum á vef Hagstofu Íslands var hlutfall einstaklinga undir lágtekjumörkum árið 2023 um 9%. Börn í slíkum aðstæðum eru talin búa við skort á efnislegum gæðum, en í athugunum sínum styðst Hagstofan við stuðul Eurostat um bág lífskjör. „Börn þurfa að búa við skort á efnislegum gæðum vegna þess að þau fæðast ekki í rétta stétt. Fæðingarorlof á að vera fjárhagslegur stuðningur sem greiddur er af viðkomandi yfirvöldum til foreldra nýbura til þess einmitt að barn geti verið í samvistum við foreldra sína. Til þess er fæðingarorlof.“ Að sögn Ásu skapa launatengdar greiðslur sjóðsins misrétti milli barna eftir efnahagslegri stöðu foreldra. „Slíkt stríðir gegn jafnræðisreglum Barnasáttmálans og undirstrikar að stjórnvöld þurfi að endurskoða kerfið með hagsmuni barna í fyrirrúmi,“ segir Ása í ritgerð sinni. „Miðað við núverandi greiðslur vegna fæðingarorlofs til námsmanna, ef foreldri hefur ekki vinnu eða er í minna en 25% starfi, foreldri nær ekki að vera í starfi á meðgöngu vegna veikinda eða verðandi foreldri er öryrki, eru miklar líkur á að nýfædd ungbörnin búi við skort á efnislegum gæðum og falli undir stuðul Eurostat um bág lífskjör. Þar með er regluverk yfirvalda, sem byggist á ákvörðunum ójafnræðis, að bitna á ósjálfbjarga hvítvoðungum sem geta enga björg sér veitt.“ Frétt af mbl.is Ekki gert til þess að tefja fyrir Það sem barni er fyrir bestu skal hafa forgang Að lokum veltir Ása upp spurningunni hvort yfirvöldum beri að tryggja börnum fjárhagslegt jafnræði. Hún bendir á að regluverkið, eins og það er í dag, stangist á við þriðju grein Barnasáttmálans, en sáttmálinn er lögfestur á Íslandi. „Þar stendur að það sem barninu er fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar félagsmálastofnanir á vegum hins opinbera eða einkaaðila, dómstólar, stjórnvöld eða löggjafastofnanir gera ráðstafanir sem varða börn. Fæðingarorlof varðar börn, ekki foreldrana.“ „Börn fæðast öll með sömu þarfir. Út frá hvaða forsendum er hægt að réttlæta að nýfædd börn njóti mismunandi stuðnings?“ segir Ása að lokum. Frétt af mbl.is Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Ábyrgð stjórnvalda mikil Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna leggur ríka skyldu á aðildarríki að tryggja velferð og réttindi barna, óháð efnahagslegum bakgrunni. Misháar upphæðir fæðingarorlofsgreiðslna, þar sem lágtekjuhópar og foreldrar í óvæntum aðstæðum lúta í lægra haldi, gæti talist bein mismunun á réttindum barna til að eiga jöfn tækifæri eins og Barnasáttmálinn kveður á um. „Það er alveg ljóst að regluverk Fæðingarorlofssjóðs hefur áhrif á velferð barna og hvernig þeim reiðir af síðar meir í þjóðfélaginu. Yfirvöld og stofnanir viðhalda ójöfnuði þegar þau líta fram hjá lágtekjuhópum í viðkvæmri stöðu. Fæðingarorlofsgreiðslur eru ekki miðaðar út frá þörfum barns, heldur launatengdum aðstæðum foreldris. Öll ung börn hafa sömu þarfir og erfitt er að réttlæta þennan mismun,“ segir Ása. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Stjóri United hættir stuttu fyrir fyrsta deildarleikinn „Hann gerði mér stóran greiða, hann Jökull“ Mismunað eftir stöðu foreldra UEFA hótar að lögsækja FIFA Stórsigur í síðasta leiknum á EM Umræðan Margbrotinn Ódysseifur Þrautir í Ceuta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Eins og að ég væri í návist almættisins Minkagildrurnar tómar í morgun: Sjá til lands Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Aldrei tekist jafn vel til með hátíðina Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Gróf líkamsárás á Akureyri Málarar þurrka tárin Sérsveitin kölluð út: Miðaði byssu á annan mann Þyrlan kölluð út vegna knapa sem féll af baki Handtekinn á hlaupahjóli: Grunur um ölvunarakstur Hafa heillað mannkynið frá upphafi Flugeldasýningin á Einni með öllu á Akureyri Ekki rignt meira í rúm 40 ár Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sonur Arons Can sprengdi krúttskalann: „Hæ Theo“ Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Myndir: Gjöreyðilagðist í brunanum Sögðust hafa óskað eftir leyfi frá Landhelgisgæslunni Með eggvopn innan um þúsundir á FM95Blö Vopnalagabrot á Akureyri: Níu handteknir Sérsveitin kölluð út: Miðaði byssu á annan mann Höfnuðu Bandero á grundvelli áhættumats Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Íslendingum sendur tónninn Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Nýjast á mbl.is » Stjóri United hættir stuttu fyrir fyrsta deildarleikinn „Hann gerði mér stóran greiða, hann Jökull“ Mismunað eftir stöðu foreldra UEFA hótar að lögsækja FIFA Stórsigur í síðasta leiknum á EM Umræðan Margbrotinn Ódysseifur Þrautir í Ceuta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enginn skipverjanna í gæsluvarðhaldi Handteknir með skotvopn á Akureyri Ekki rignt meira í rúm 40 ár Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Aldrei tekist jafn vel til með hátíðina Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Gróf líkamsárás á Akureyri Málarar þurrka tárin Sérsveitin kölluð út: Miðaði byssu á annan mann Þyrlan kölluð út vegna knapa sem féll af baki Handtekinn á hlaupahjóli: Grunur um ölvunarakstur Hafa heillað mannkynið frá upphafi Flugeldasýningin á Einni með öllu á Akureyri Ekki rignt meira í rúm 40 ár Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sonur Arons Can sprengdi krúttskalann: „Hæ Theo“ Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Myndir: Gjöreyðilagðist í brunanum Sögðust hafa óskað eftir leyfi frá Landhelgisgæslunni Með eggvopn innan um þúsundir á FM95Blö Vopnalagabrot á Akureyri: Níu handteknir Sérsveitin kölluð út: Miðaði byssu á annan mann Höfnuðu Bandero á grundvelli áhættumats Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Íslendingum sendur tónninn Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Enginn læknir og heilsugæslan lokuð

Share this article