Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Nær ógerningur að fá ráðherra til að ræða ESB

Read Full Article →

Innlent | Spursmál | mbl | 3.8.2026 | 18:37 „Fjölmiðlar geta aldrei orðið fullkomlega hlutlausir“ Stefán Einar Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Spursmál „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi Af hverju taka við löstunum líka? #133. - Hefði Kerecis orðið til innan Evrópusambandsins? Stjórnmálafólkið okkar í sumarmarineringu » Fleiri tengdar fréttir Andrés Magnússon, blaðamaður Morgunblaðsins, segir bæði forsætisráðherra og utanríkisráðherra hafa reynst afar treg til að ræða Evrópumálin við blaðið undanfarna mánuði. Hann segir það óheppilegt þegar þjóðin standi frammi fyrir einni stærstu pólitísku ákvörðun síðari ára og telur stjórnmálamenn verða að þola gagnrýnar spurningar fjölmiðla. Þetta kom fram í Spursmálum þar sem rætt var um fjölmiðlaumfjöllun í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Án árangurs Andrés sagði fréttamenn Morgunblaðsins ítrekað hafa óskað eftir viðtölum við ráðherra um Evrópumálin en án árangurs. „Það reyndist eiginlega ógerningur að ná viðtali við forsætisráðherra ef Evrópumálin voru meðal umræðuefna sem við vildum ræða. Utanríkisráðherra hefur sömuleiðis verið mjög erfitt að ná tali af, sem kom mér á óvart enda hefur hún yfirleitt verið fljót að svara fyrir sig,“ sagði hann. Að hans mati verða stjórnmálamenn að sætta sig við að fjölmiðlar spyrji óþægilegra spurninga. „Í lýðræðisþjóðfélagi verða stjórnmálamenn að þola að fjölmiðlar séu ekki endilega að segja þær fréttir sem þeir vilja sjá. Það er hlutverk okkar að spyrja gagnrýninna spurninga, en á móti ber okkur að gæta sanngirni og leita andstæðra sjónarmiða.“ Segir umræðuna hafa harðnað Í viðtalinu var einnig rætt um gagnrýni sem Morgunblaðið hefur sætt vegna umfjöllunar sinnar um Evrópumálin. Stefán Einar Stefánsson benti á að blaðið væri gjarnan sakað um hlutdrægni á samfélagsmiðlum og að eigendahald þess væri dregið inn í umræðuna. Andrés sagði hitann í umræðunni hafa aukist verulega og nefndi sem dæmi að gamansöm Facebook-færsla sem hann birti um spænskt herskip í Reykjavíkurhöfn hefði verið túlkuð af sumum sem dæmi um falsfréttir. Að hans mati væri óraunhæft að ætlast til algjörs hlutleysis í fjölmiðlum. Óraunhæft að ætlast til algjörs hlutleysis „Fjölmiðlar geta held ég aldrei orðið fullkomlega hlutlausir. Það er alltaf einhver sem ákveður hvað telst fréttnæmt. Fréttamat er mannlegt mat.“ Hann benti á að Morgunblaðið hefði um áratugaskeið tekið skýra ritstjórnarlega afstöðu gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu en sagði það ekki útiloka sanngjarnan fréttaflutning. „Við höfum birt greinar Evrópusinna og rætt við þá í fréttum. Hlutverk blaðsins er líka að draga fram þau sjónarmið sem okkur finnst fá of litla athygli í opinberri umræðu.“ Að mati Andrésar er mikilvægt að ólík sjónarmið fái notið sín. „Í lýðræðisþjóðfélagi þurfa allar raddir að fá mögulega áheyrn.“ Viðtalið við Andrés má sjá og heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan: Tengdar fréttir Spursmál „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi Af hverju taka við löstunum líka? #133. - Hefði Kerecis orðið til innan Evrópusambandsins? Stjórnmálafólkið okkar í sumarmarineringu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Bílslys á Hrútafjarðarhálsi: Viðbragðsaðilar nýlentir Reiðubúinn í aðra endurkomu Nær ógerningur að fá ráðherra til að ræða ESB Tilkynnt um innbrot víða á höfuðborgarsvæðinu Umræðan Þrautir í Ceuta Margbrotinn Ódysseifur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skýrslutökur í varðskipi „Það er bara allt í gangi“ Fjórtán ábendingar borist um minka á ferð Fer fram á brottvísun og endurkomubann Mest lesið Í gær Í vikunni Mismunað eftir stöðu foreldra Gróf líkamsárás á Akureyri Myndir: Aldrei tekist jafn vel til með hátíðina Kærðir fyrir að miða eftirlíkingum á fólk Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Sjúkraflutningamaður sleginn í Eyjum Málarar þurrka tárin Vilja halda daginn heilagan Sérsveitin kölluð út: Miðaði byssu á annan mann Þyrlan kölluð út vegna knapa sem féll af baki Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sonur Arons Can sprengdi krúttskalann: „Hæ Theo“ Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Myndir: Gjöreyðilagðist í brunanum Sögðust hafa óskað eftir leyfi frá Landhelgisgæslunni Með eggvopn innan um þúsundir á FM95Blö Vopnalagabrot á Akureyri: Níu handteknir Sérsveitin kölluð út: Miðaði byssu á annan mann Höfnuðu Bandero á grundvelli áhættumats Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Nýjast á mbl.is » Tvö bílslys á Norðurlandi vestra: Telja bíla ónýta Bílslys á Hrútafjarðarhálsi: Viðbragðsaðilar nýlentir Reiðubúinn í aðra endurkomu Nær ógerningur að fá ráðherra til að ræða ESB Tilkynnt um innbrot víða á höfuðborgarsvæðinu Umræðan Þrautir í Ceuta Margbrotinn Ódysseifur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjórtán ábendingar borist um minka á ferð Miðar að rjúka út og metsunnudagur í færi Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Handteknir með skotvopn á Akureyri Mest lesið Í gær Í vikunni Mismunað eftir stöðu foreldra Gróf líkamsárás á Akureyri Myndir: Aldrei tekist jafn vel til með hátíðina Kærðir fyrir að miða eftirlíkingum á fólk Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Sjúkraflutningamaður sleginn í Eyjum Málarar þurrka tárin Vilja halda daginn heilagan Sérsveitin kölluð út: Miðaði byssu á annan mann Þyrlan kölluð út vegna knapa sem féll af baki Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sonur Arons Can sprengdi krúttskalann: „Hæ Theo“ Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Myndir: Gjöreyðilagðist í brunanum Sögðust hafa óskað eftir leyfi frá Landhelgisgæslunni Með eggvopn innan um þúsundir á FM95Blö Vopnalagabrot á Akureyri: Níu handteknir Sérsveitin kölluð út: Miðaði byssu á annan mann Höfnuðu Bandero á grundvelli áhættumats Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða

Share this article