Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sendiherra Úkraínu í Bandaríkjunum rekinn

  • What: Ukraine's ambassador to the US is removed from her post
  • Impact: The move is part of a broader government reshuffle
Read Full Article →

Búið er að reka Olha Stefanishyna úr starfi sendiherra Úkraínu í Bandaríkjunum. Stefanishyna var rekin að beiðni Úkraínuforseta Volodmyr Zelensky en brottreksturinn er liður í uppstokkun úkraínsku ríkisstjórnarinnar, herforingja og annarra hátt settra embættismanna. Olha tók við embætti sendiherra í ágúst 2025. Zelensky boðaði í júlí að von væri á uppstokkun í stjórnsýslu landsins. Ekki er þó nákvæmlega vitað af hverju Stefanishyna var rekin. Úkraína vinnur nú að samningi við Bandaríkin um afhendingu á Patriot-flugskeytum og möguleikann á framleiðslu þeirra í Úkraínu. Zelensky hefur ekkert tjáð sig um brottrekstur sendiherrans. Ekki hefur verið tilkynnt um hver taki við embættinu í stað hennar.

Share this article