Kristrún Guðnadóttir fór tvívegis á Ólympíuleikana í skíðagöngu og hefur orðið Íslandsmeistari alls fjórtán sinnum í skíðagöngu. Hún hefur glímt við þrálát meiðsli í hné og í vor þurfti hún að leggja skíðin á hilluna. Hún segir það hafa verið krefjandi að hafa ekki fengið að taka ákvörðunina sjálf um að kveðja skíðin. „Þetta var ákveðið sjokk þegar ég áttaði mig á því að ferillinn væri búinn. Sérstaklega af því að þetta gerðist svo skyndilega.“ Kristrún sneri sig á fæti í vor. Þá segist hún hafa tekið sér nokkra daga í að melta fréttirnar áður en hún sagði fólki frá. „Ég gaf sjálfri mér mánuð til að komast yfir þetta en ég finn núna að þetta mun taka lengri tíma.“ Erfitt að sætta sig við ferilinn Þegar Kristrún lítur til baka á ferilinn koma upp blendnar tilfinningar. Hún segist vitanlega stolt af því sem hún náði að áorka en er engu að síður ekki alveg sátt. „Það sem hefur verið erfiðast andlega er það að ég er ekki alveg nógu sátt með ferilinn minn. Mér finnst ég eiga meira inni. Mér fannst ég ná betri árangri á æfingum og mér fannst ég sérstaklega ekki ná að toppa mig á stórmótum. Ég átti betri mót í kringum stórmótin, þegar ég var ekki að reyna að toppa mig.“ „Það hefur verið erfiðast að horfa til baka og vera ekki sátt en á sama tíma sjá að ég hef náð mjög góðum árangri og sætta sig við það. Ég held að það komi kannski með tímanum.“ Vonar að fleiri komi og toppi sig Kristrún segist vilja vera áfram inni í skíðaheiminum. Hún er búin að læra íþróttafræði og þroskaþjálfun samhliða afreksíþróttastarfinu og vill stækka skíðagönguna hér á landi. „Draumurinn minn er að geta gefið eitthvað til baka. Ég brenn svo mikið fyrir því að koma fleiri krökkum í þessa íþrótt og að fólk sjái hvað hún er frábær. Koma þeim á framfæri og hjálpa þeim að láta þeirra drauma rætast.“ Kristrún hefur það í hyggju að þjálfa skíðagöngu nú eftir að ferlinum er lokið. „Markmiðið mitt síðustu ár hefur verið að vera svolítið brautryðjandi sem stelpa í skíðagöngu og sýna hvað er hægt að gera. Ég vona að það komi fleiri að æfa skíðagöngu, taki við og standi sig miklu betur en ég gerði. Það er það sem ég virkilega vona.“ Kristrún Guðnadóttir er tvöfaldur ólympíufari í skíðagöngu og fjórtánfaldur Íslandsmeistari. Eftir meiðsli í hné þurfti hún að taka þá erfiðu ákvörðun að leggja skíðin á hilluna. Hún segist þó áfram vilja leggja sitt af mörkum til íþróttarinnar.