Rússar hafa fjölgað skipum í skuggaflota sínum sem flytur fljótandi jarðgas. Þeir hafa bæði keypt notuð skip og tekið í notkun fyrstu gasflutningaskipin sem smíðuð eru innanlands. Með þessu búa Rússar sig undir bann Evrópusambandsins við innflutningi á rússnesku fljótandi jarðgasi, sem tekur gildi árið 2027. Að sögn Financial Times hafa að minnsta kosti átta notuð skip, sem flytja fljótandi jarðgas, verið seld og síðan flutt rússneskt gas undanfarna sex mánuði. Flotinn telur nú 25 skip, þar á meðal tvö ný skip frá Zvezda-skipasmíðastöðinni í austurhluta Rússlands. Markmiðið er að halda gasútflutningi áfram þrátt fyrir hertar aðgerðir, líkt og Rússar hafa gert með olíuútflutning sinn. Rússneski skuggafloti olíuskipa telur nú meira en þúsund skip sem starfa utan vestrænna trygginga- og skráningarkerfa. ESB-ríki keyptu nær alla framleiðslu Yamal-verksmiðjunnar í Síberíu á fyrri helmingi ársins eins og greint var frá í síðasta mánuði. Sjá einnig Metkaup ESB-ríkja á gasi frá Rússlandi Frá 2027 verður allur innflutningur sambandsins á fjótandi jarðgasi frá Rússum bannaður. Sum fyrirtæki og verkefni á vegum Rússa, þar á meðal Arctic LNG 2, sæta þegar sérstökum refsiaðgerðum. Evrópusambandið gekk þó ekki svo langt að banna flutning rússnesks gass til þriðju ríkja með skipum frá aðildarríkjunum, eftir mikinn þrýsting frá Grikkjum sem hafa hagnast á flutningunum. Sjá einnig Grísk skipafélög högnuðust ríkulega á rússneskri olíu Novatek er ráðandi á rússneskum markaði fyrir fljótandi jarðgas. Yamal og Arctic LNG 2 framleiða saman meira en 65% af öllu fljótandi jarðgasi í landinu. Alþjóðleg skipafélög flytja enn stóran hluta gass frá verksmiðjum sem refsiaðgerðir ná ekki til, en vaxandi hömlur hafa knúið Rússa til að fjölga flutningsleiðum. Skuggaskipin eru yfirleitt skráð á skúffufélög tengd Rússlandi í Dúbaí, Hong Kong eða Singapúr og sigla undir hentifánum. Líkt og olíuskipin trufla gasflutningaskipin oft staðsetningarmerki og færa farm milli skipa til að dylja uppruna hans. Slíkar aðgerðir eru þó erfiðari í framkvæmd í flutningum jarðgass, sem þarf að geyma við 162 gráður undir frostmarki í sérhæfðum tönkum. Nýtt skip kostar um 300 milljónir dala. Arctic LNG 2 selur nú aðeins gas til Kína. Ellefu skip, öll á bandarískum refsiaðgerðalista, flytja gas frá norðurslóðum í fljótandi birgðastöðvar, þar sem það er sett í hefðbundin skip til Kína. Fjögur skip til viðbótar eru í smíðum hjá Zvezda en afhending sex ísklassa skipa frá Suður-Kóreu hefur stöðvast vegna refsiaðgerða.