- What: SpaceX rocket debris approaching Earth
- Impact: Potential risk from space debris
Hluti eldflaugar SpaceX sem hefur verið á reki síðan í fyrra stefnir á tunglið á miklum hraða. Engin hætta stafar af árekstrinum hér á jörðu niðri. Gert er ráð fyrir að eldflaugarhlutinn, sem er á stærð við rútu og vegur fjögur tonn, skelli á tunglingu á 8.690 kílómetra hraða á klukkustund rétt eftir klukkan hálf sjö fyrir hádegi í dag. Vísindamenn bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA telja að áreksturinn skilji eftir sig nýjan gíg sem verður um 18 metrar í þvermál og fjögurra metra djúpur. Geimruslið var hluti af SpaceX Falcon 9 eldflaug sem flutti ómannað tunglfar Fireflay Aerospace út í geim í janúar í fyrra. Eldflaugarhlutum sem þessum er sleppt í þrepum eftir því sem líður á geimskot. Þeir falla þá yfirleitt í átt til jarðar og í hafið eða brenna upp í gufuhvolfinu. Vegna þess að þetta geimskot þurfti á meiri krafti en gengur og gerist endaði þessi hluti flaugarinnar í geimnum í stað þess að hrapa til jarðar. Þar hefur hann reikað stefnulaust síðan innan um annað geimrusl. Það var svo fyrr á þessu ári sem stjörnufræðingar reiknuðu það út að flaugin myndi klessa á tunglið. Árekstrar geimrusls við tunglið eru sjaldgæfir, að því er segir í frétt The Guardian . Hluti kínverskrar eldflaugar klessti á tunglið í mars 2022 eftir tilraunaflug. NASA klessti eldflaugarhluta á tunglið af ásettu ráði 2009 til að rannsaka mökkinn af geimryki sem áreksturinn sendi upp frá yfirborði tunglsins. Það ætla vísindamenn NASA einnig að gera við þennan árekstur.