Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lögreglan handtók menn vopnaða hamri og öxi í miðborginni

Read Full Article →

Bíll úr flota lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.RÚV / Alexander Kristjánsson Tveir menn, vopnaðir hamri og öxi, voru handteknir í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt. Í dagbók lögreglu segir að tilkynning hafi borist um vopnaða menn sem voru sagðir ógnandi og árásargjarnir. Lögreglan lagði hald á vopnin, handtók mennina og færði niður á lögreglustöð. Meðal þeirra verkefna sem rötuðu á borð lögreglu frá klukkan 17 í gær til 5 í morgun var tilkynning um þjófnað á hóteli í miðborginni. Þrír eru grunaðir um að hafa stolið þaðan hörðum diski. Tvær tilkynningar bárust um umferðaróhöpp. Annað var í Mosfellsbæ en hitt í póstnúmeri 110 í Reykjavík. Engan sakaði en tveir bílar urðu fyrir tjóni í hvoru slysi fyrir sig.

Share this article