Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sterkir bankar en sífellt þyngra umhverfi

Read Full Article →

Uppgjör Landsbankans, Arion banka og Íslandsbanka sýna að íslensku bankarnir eru vel fjármagnaðir, lánasöfnin eru að stækka og arðsemi eigin fjár er yfir 13%. Hagnaður þeirra nam samanlagt tæpum 52 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Bankarnir voru með um 752 milljarða króna í eigið fé í lok júní en tæplega 4.770 milljarða í útlánum. Fyrir hverja krónu í eigin fé stóðu því rúmar sex krónur í lánum. Innlán námu um 3.350 milljörðum og fjármögnuðu um 70% lánasafnsins. Þetta eru háar fjárhæðir á íslenskan mælikvarða og arðsemin er ágæt. Íslenskt efnahagslíf á mikið undir því að bankarnir skili nægilegum hagnaði til að byggja upp eigið fé svo þeir geti áfram lánað heimilum og fyrirtækjum og tekið á sig útlánatöp þegar á móti blæs. Útlánageta banka ræðst ekki aðeins af því hversu mikið fé þeir geta tekið við í innlánum eða aflað á skuldabréfamarkaði. Eigið fé setur þeim einnig skorður, enda þarf ákveðið magn þess að standa á bak við áhættuvegnar eignir. Fjárfestingarbankastarfsemi er áfram lítil, þóknanatekjur takmarkaðar og eigin áhættutaka bankanna á mörkuðum hófleg. Íslensku bankarnir líkjast því fremur stórum sparisjóðum en alhliða fjármálafyrirtækjum. Starfsemin snýst að langmestu leyti um innlán, markaðsfjármögnun og útlán til heimila og fyrirtækja, oft gegn veðum og öðrum tryggingum. Áhættusamari markaðsviðskipti setja lítinn svip á rekstur kerfislega mikilvægu bankanna. Slík starfsemi er að verulegu leyti vettvangur fárra fagfjárfesta og kemur lítið við sögu í fjármálum almennings. Á sama tíma hefur fjármálastarfsemi utan hefðbundinna banka, einkalán, afleiðumarkaðir og aðrar skipulagðar fjármálaafurðir vaxa hratt erlendis hefur íslenska kerfið færst í gagnstæða átt Hreinar vaxtatekjur íslenskra banka námu samanlagt tæpum 104 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins og voru langstærsta tekjustoðin. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article