Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Færri kostir við aðildarviðræður

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 5.8.2026 | 11:00 Færri kostir við aðildarviðræður Mestallur innflutningur Íslands og mikið af útflutningnum liggur á milli Reykjavíkur og Rotterdam. mbl.is/Eyþór Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Ákveði Íslendingar að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið (ESB) á ný hefur það víðtæk áhrif á stöðu landsins í heiminum, bæði pólitísk og efnahagsleg. Ísland gengur ekki í sambandið við það eitt að hefja viðræður, en í ákvörðuninni felst engu að síður yfirlýsing um hvar landið hyggist skipa sér í sveit. Uppgefið markmið aðildarviðræðna, bæði af hálfu Íslands og ESB, er aðild. Það gæti haft sitt að segja gagnvart hinum hvatvísa húsbónda í Hvíta húsinu, en ekki síður áhrif á viðskipti Íslands við ríki utan ESB. Núverandi fríverslunarsamningar héldu gildi sínu þótt aðildarviðræður hæfust, en forsendur sjálfstæðrar íslenskrar viðskiptastefnu breyttust þegar í stað. Öðrum ríkjum yrði ljóst að innan fárra missera kynni aðild að liggja fyrir og þá þyrfti Ísland að segja upp eigin fríverslunarsamningum og taka upp sameiginlega viðskiptastefnu, tollskrá og samninga ESB. Viðbúið er að það truflaði yfirstandandi viðræður um nýja fríverslunarsamninga og útilokaði aðrar um fyrirsjáanlega framtíð. Önnur ríki myndu varla leggja á sig margra ára samningavinnu ef líkur væru á að Ísland hyrfi frá borði áður en samningurinn tæki gildi eða skömmu síðar. Ekkert liggur fyrir um hvort af aðild yrði. Viðsemjendur Íslands hlytu þó að reikna með að landið meinti eitthvað með aðildarviðræðum. Ríki sem þegar hafa gert fríverslunarsamninga við Ísland kynnu einnig að halda að sér höndum um frekari uppbyggingu viðskiptanna meðan framtíð íslenskrar viðskiptastefnu væri óviss. Tvær meginstoðir Utanríkisviðskipti Íslands hvíla nú á tveimur meginstoðum. EES-samningurinn veitir aðgang að innri markaði Evrópu, en EFTA hefur jafnframt gert 35 fríverslunarsamninga við 49 ríki og landsvæði utan ESB. Samningar eru þegar í gildi gagnvart 41 þeirra. Þar bætast við tvíhliða samningar Íslands, einkum við Kína og Færeyjar, auk sérstaks samnings EES/EFTA-ríkjanna við Bretland. EFTA telur fríverslunarnetið ná til nærri 70 milljarða dala vöruviðskipta, sem gætu raunar verið meiri, því fyrirtæki nýta ekki alltaf þau tollfríðindi sem þegar hefur verið samið um. EES er þó langmikilvægasta viðskiptaumgjörð Íslands. Áætlað er að um 65% utanríkisviðskipta fari fram við ríki svæðisins (þó nákvæm tala sé nokkuð á reiki). Samningurinn tryggir fjórfrelsið og samræmdar reglur á stórum hluta markaðarins, en EES er hvorki tollabandalag né sameiginleg viðskiptastefna. Sameiginleg landbúnaðar- og fiskveiðistefna ESB stendur utan EES og sérstök ákvæði gilda um viðskipti með landbúnaðar- og sjávarafurðir. Við ESB-aðild yrðu íslenskar sjávarafurðir hluti innri markaðarins og eftirstandandi tollar féllu niður. Á móti færi sjávarútvegurinn undir sameiginlega fiskveiðistefnu sambandsins, nema samið yrði um varanlega undanþágu frá henni. Rotterdam er ekki heimurinn Tölur um hlut ESB í utanríkisverslun Íslands þarf þó að lesa með fyrirvara. Rotterdam er helsta umskipunarhöfn íslenskra milliríkjaviðskipta og Holland því stundum skráð sem viðskiptaland, þótt endanlegur áfangastaður eða uppruni vörunnar sé annars staðar. Hagstofan rannsakaði þetta árið 2015 og færði hlut Hollands í útflutningi ársins 2014 niður um sex prósentustig. Skekkjan snerist einkum um ál sem fór um Rotterdam, en endanlegt ákvörðunarland var ekki alltaf þekkt. Fyrirvarinn á einnig við um innflutning, þótt tölfræðin eigi þar að miðast við framleiðsluland. Kóreskur bíll verður ekki hollenskur þótt hann sé keyptur af evrópskum dreifingaraðila og fluttur hingað um Rotterdam. Flutningshöfn, söluland, framleiðsluland og reikningsmynt segja hvert sína sögu. Aðlögun meðan samið er Sameiginleg afstaða ESB við upphaf viðræðna árið 2010 sagði skýrt að markmiðið væri aðild og að Ísland ætti á meðan að samræma stefnu sína gagnvart þriðju ríkjum. Í rýniskýrslu um utanríkistengsl kom fram að Ísland þyrfti að segja öllum eigin fríverslunarsamningum upp fyrir aðild. ESB krafðist einnig samráðs um afstöðu innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar og stigvaxandi samræmingar þar sem stefna Íslands og sambandsins færi ekki saman. Það útilokar ekki nýja samninga meðan viðræður standa. Fríverslunarsamningurinn við Kína var t.d. gerður meðan ESB-ferlið stóð yfir. Hann var hins vegar ekki dæmigerður, enda bjuggu líklega pólitísk sjónarmið ekki síður að baki en viðskiptaleg. Eins gætu EFTA-viðræður einnig haldið áfram, enda stæðu Noregur, Sviss og Liechtenstein eftir þótt Ísland stefndi inn í ESB. Yfirvofandi brotthvarf Íslands ylli þó örugglega truflun og drægi úr hvata gagnaðila til að semja um séríslenskar ívilnanir. Og til að afstýra uppnámi almennings: Viðskipti við Temu, AliExpress og aðra kínverska vörumiðlara myndu ekki stöðvast við aðild. Íslensk-kínverski fríverslunarsamningurinn félli hins vegar niður og sameiginlegir tollar, virðisaukaskatts-, öryggis- og tollafgreiðslureglur ESB tækju við. Það gæti hækkað verðið verulega. Ekki tollfrjáls paradís Aðgangur að innri markaðnum er mikils virði, en hann er ekki án viðskiptahindrana. Seðlabanki Evrópu hefur metið viðbótarkostnað við viðskipti milli ESB-ríkja, samanborið við viðskipti innan sama ríkis, sem tollígildi upp á 67% fyrir vörur og 95% fyrir þjónustu; fyrir framleiðsluvörur sérstaklega 54%. Þetta eru ekki bókstaflegir tollar og mælingin nær einnig til tungumála, fjarlægðar, neysluvenja og annars kostnaðar. Hún sýnir þó að tregða á innri markaðnum er mikil, þótt hann hafi verið starfræktur í rúm 33 ár. Framkvæmdastjórn ESB hefur viðurkennt vandann og skilgreint „tíu hræðilegar hindranir“, meðal annars flókið og ósamhæft regluverk, ólíka framkvæmd ríkjanna, starfsréttindi, pökkunar- og merkingarkröfur og hömlur í þjónustu og smásölu. Draghi-skýrslan komst að sömu meginniðurstöðu: brotakenndur markaður hindri evrópsk fyrirtæki í að vaxa og keppa við bandarísk og kínversk stórfyrirtæki. „Já“ við aðildarviðræðum væri því ekki fyllilega kostnaðarlaus leið til að „kíkja í pakkann“. Vissulega yrði engum gildandi samningi sagt upp daginn eftir kosningar, en væntingar annarra ríkja og vilji þeirra til langtímafjárfestingar í séríslenskum viðskiptatengslum gætu breyst strax. Aðildarviðræður opnuðu þannig á dýpra og nánara viðskiptasamband við meginland Evrópu, sem er harla drjúgt fyrir, en þrengdu að öllum öðrum viðskiptatengslum. Með því fjölgaði valkostum Íslands því ekki, heldur myndi þeim fækka. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ætla aftur út í atvinnumennsku Færri kostir við aðildarviðræður Good Morning America í Bláa lóninu 12. ágúst Stórtónleikar Bubba í nýju þjóðarhöllinni? Ármann semur við reynslumikinn Pólverja Umræðan Fólkið sem er okkur ósammála Dýraheilbrigði sem undirstaða matvælahagkerfisins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Ekki aðkallandi fyrir Ísland að bregðast við Enn fjölmörg innbrot: Eru með „allt í botni“ Baðlón í nýjum kjarna Keflavíkur Mest lesið Í gær Í vikunni Verndar ekki kynlífsverkafólk „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Dæmdur í fangelsi fyrir samræði við 13 ára stjúpsystur Ný vatnslögn til Eyja Faldi sig í vélarrými bíls og féll á götuna Ógnuðu fólki: Annar með hamar og hinn öxi Birt ákvörðun um brottvísun og endurkomubann Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Aðstæður hvergi betri en á Rauðasandi Náðu myndskeiði af holu í höggi Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Dularfullur ljósblettur í Barkárdal Andlát: Heimir Hannesson Hitinn gæti farið upp í 20 stig í dag Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Neytendastofa sektar Parka og EasyPark „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Maðurinn er kominn í leitirnar Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Nýjast á mbl.is » Ætla aftur út í atvinnumennsku Færri kostir við aðildarviðræður Good Morning America í Bláa lóninu 12. ágúst Stórtónleikar Bubba í nýju þjóðarhöllinni? Ármann semur við reynslumikinn Pólverja Umræðan Fólkið sem er okkur ósammála Dýraheilbrigði sem undirstaða matvælahagkerfisins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Eins og að ég væri í návist almættisins Faldi sig í vélarrými bíls og féll á götuna Dómsmálaráðherra situr fjarfund um Ceuta Mest lesið Í gær Í vikunni Verndar ekki kynlífsverkafólk „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Dæmdur í fangelsi fyrir samræði við 13 ára stjúpsystur Ný vatnslögn til Eyja Faldi sig í vélarrými bíls og féll á götuna Ógnuðu fólki: Annar með hamar og hinn öxi Birt ákvörðun um brottvísun og endurkomubann Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Aðstæður hvergi betri en á Rauðasandi Náðu myndskeiði af holu í höggi Kólumbísk

Share this article