Olíuhreinsistöð Dangote-samstæðunnar í Nígeríu stefnir að stærstu skráningu í sögu afrískra hlutabréfamarkaða. Fyrirtækið hyggst afla um fimm milljörðum dala með frumútboði sem á að ljúka í október, samkvæmt heimildarmanni Reuters . Hreinsistöðin er að meirihluta í eigu Alikos Dangote, auðugasta manns Afríku. Stöðin hagnaðist verulega á eldsneytisskorti vegna stríðsins við Íran með sölu flugvélaeldsneytis í Afríku og Vestur-Evrópu. Fénu verður varið til að auka afkastagetu framleiðslunnar í Lagos, sem nú vinnur 650.000 olíutunnur á dag, og styðja áform um sambærilega stöð í Kenía. Markmið Dangote er að draga úr innflutningi Afríkuríkja á dýru eldsneyti og gera álfuna að útflutningsaðila. Kauphallir í Suður-Afríku, Kenía, Egyptalandi, Gana og Rúanda hafa rætt við ráðgjafa fyrirtækisins um þátttöku. Talið er að allt að 500 milljónir dala geti komið frá fjárfestum í Kenía, meðal annars lífeyrissjóðum. Fyrirtækið hefur sótt um heimild til útboðsins hjá nígeríska fjármálaeftirlitinu. Samþykki gæti legið fyrir á næstu vikum og útboðslýsing birst í september. Aðalskráningin verður í Nígeríu og endanleg fjárhæð ræðst af samþykki eftirlitsins. Einkafjárfesting upp á 2,5 milljarða dala fyrir 6% hlut í júlí gaf til kynna um 40 milljarða dala verðmat sem þykir hátt í samanburði við sambærileg félög. Tyrkneska fyrirtækið Tupras og bandaríska félagið HF Sinclair, sem hafa sambærilega vinnslugetu, eru metin á 12 og 16 milljarða dala. Uppbygging hreinsistöðvarinnar kostaði um 20 milljarða dala og hóf hún starfsemi árið 2024 og náði fullum afköstum fyrr á árinu. Nígeríska ríkisolíufélagið NNPC á rúmlega 7% hlut. Dangote stefnir að því að auka framleiðsluna í 1,4 milljónir tunna á dag.