Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Riddarar réttlætis

Read Full Article →

Síðustu daga höfum við fengið tvö dæmi um það þegar fólk hefur verið svo elskulegt að hafa vit fyrir okkur, með misjöfnum árangri. Fyrst ákvað einhver hópur snillinga að sleppa minkum úr búrum sínum í Mosfellsdal. Líklega til að mótmæla minkaeldi. Það þarf ekki að hafa mörg orð um skelfilegar afleiðingar sem slíkt gæti haft í för með sér, fyrir dýraríkið á svæðinu. Þetta virðist vera þriðja áhlaup þessa hóps en áður hafa hænsna- og svínabú orðið fyrir barðinu á þessu fólki. Í öll skiptin hefur það haft hræðilegar afleiðingar fyrir dýrin – sem viðkomandi virðist svo annt um. Nokkrum dögum síðar reyndu svo skipverjar á Banderos, báti Paul Watsons, að kasta netum og vírum í skrúfur hvalveiðiskips úti á rúmsjó. Það er í besta falli skemmdarverk og versta falli stórhættulegt. Það sem vekur þó athygli við þessi tvö dæmi er sú sannfæring að þú eigir rétt á því að brjóta lög, skaða fólk og dýr og valda skemmdum. Allt í nafni dýravelferðar, sem þú hefur sjálfur skilgreint. Þessu er svo fylgt eftir með myndböndum sem eiga að teikna upp mynd af þér sem sérlegum mann- og dýravini og hafa þann leiðinlega sið að halla réttu máli. Það er gott að hafa í huga að minkaeldi er löglegt á Íslandi. Það sama á við um hvalveiðar. Það eru kannski ekki allir sammála því en við erum ekki samfélag ef við fylgjum ekki þeim reglum sem við höfum sjálf sett. Það er alveg sama hversu góð manneskja þér finnst þú vera – það er einfaldlega bannað að fremja skemmdarverk. Á Íslandi starfar hópur fólks við framleiðslu matvæla. Sú framleiðsla er mikilvæg fyrir samfélagið okkar og það er varla til of mikils mælst að hún fái frið fyrir sjálfskipuðum riddurum réttlætisins. Greinin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article