Innanríkisráðherra Þýskalands, Alexander Dobrindt, segir fund sprengidróna á Leipzig/Halle-flugvellinum marka „nýtt hættustig“ fyrir landið. Dobrindt segir ekkert benda til þess að viðvaningar hafi verið að verki og að rannsakendur líti á málið sem hluta af fjölþáttaárás. Þá er rannsakað hvort erlent ríki hafi átt þátt í fyrirhugaðri árás, að því er fram kemur í frétt The Guardian. Rannsaka hvort markmiðið hafi verið að ráðast á úkraínskar flugvélar Dróninn fannst nærri úkraínskum fraktflugvélum á Leipzig/Halle-flugvelli, sem er mikilvæg flutningamiðstöð fyrir þýska herinn og NATO. Skömmu áður hafði fraktflugvél þurft að hætta við lendingu á flugvellinum og rakist á óþekktan fljúgandi hlut. Vélin lenti síðar heilu og höldnu í Hannover með minni háttar skemmdir. Rannsóknin beinist meðal annars að því hvort markmiðið hafi verið að ráðast á úkraínskan búnað eða flutningastarfsemi í Þýskalandi. Leipzig-Halle flugvöllurinn er talinn mikilvægur fyrir flutninga á vegum NATO og þýska hersins. Rússland ekki nefnt berum orðum Dobrindt og aðrir þýskir embættismenn nefndu Rússland ekki beint sem mögulegan sökudólg í yfirlýsingum sínum. Sprengidróninn var fundinn hjá úkraínskum fraktflugvélum. Á síðustu misserum hafa óheimil drónaflug yfir flugvöllum, herstöðvum og öðrum mikilvægum innviðum í Þýskalandi og víðar í Evrópu vakið áhyggjur. Þýsk stjórnvöld hafa áður sakað Rússa um að standa að hluta slíkra aðgerða, en stjórnvöld í Moskvu hafa hafnað þeim ásökunum.
The article describes a physical security threat where an explosive-laden drone was discovered near Ukrainian cargo planes at Germany's Leipzig/Halle airport, a key NATO logistics hub, marking a new threat level. Investigators are treating it as part of a multi-faceted attack, exploring potential state-sponsored involvement with the aim of targeting Ukrainian equipment or supply lines. The incident follows a pattern of unauthorized drone flights over critical infrastructure in Germany and Europe, raising significant operational security concerns.