Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sænska krónan er fljótandi eins og sú íslenska

  • What: Discussion about the Icelandic and Swedish krona
  • Impact: No direct security impact
Read Full Article →

Ekki er rétt að sænska krónan sé fasttengd evrunni. Sænska krónan er með fljótandi gengi, rétt eins og sú íslenska, en í því felst að gengi hennar stjórnast af framboði og eftirspurn á hverjum tíma. Í samfélagsmiðlamyndbandi frá hreyfingunni Sjá, sem berst fyrir því að Íslendingar gangi til aðildarviðræðna við Evrópusambandið, er því haldið fram að sænska krónan sé tengd við evruna. Margrét Rós Sigurjónsdóttir, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, lýsir í myndbandinu reynslu sinni af því að taka húsnæðislán í Svíþjóð. „Ég hef búið í Svíþjóð, átt íbúð þar og verið með húsnæðislán í öðrum gjaldmiðli, sænskri krónu – sem er tengd við evru – og ég borgaði svo miklu lægri vexti þar,“ segir hún og lætur fylgja með að sænska krónan sé „tengd evrunni“. Hvað kemur fram í myndskeiðinu? „Undanfarið erum við búin að ræða alls konar í tengslum við atkvæðagreiðsluna í ágúst og hvort Ísland eigi að ganga í ESB eða ekki, eða skoða það. Það er búið að ræða matvælaverð og alls konar sem er búið að ræða. En mér finnst kannski mjög mikilvægt að við stöldrum við og hugsum aðeins hvaða áhrif hefur þetta á minn hversdag og fjölskyldur á Íslandi. Þar er auðvitað bara stærst húsnæðislánin held ég. Ég hef búið í svíþjóð, átt íbúð þar og verið með húsnæðislán í öðrum gjaldmiðli, sænskri krónu sem er tengd við evru, og ég borgaði svo miklu lægri vexti þar. Hvað þýddi það? Það þýddi að maður átti meiri afgang um hver mánaðamót eða maður getur valið að vinna minna eða valið sér störf meira út frá því sem gefur manni ánægju, ekki bara eftir launaseðlinum. Þetta er eitthvað sem mér finnst að við á íslandi eigum skilið að fá líka. Til þess að gera það þurfum við að segja já til að sjá í ágúst. Semja og kjósa aftur – og ef við erum á því að samningurinn sé nógu góður þá segjum við já við honum. Þá fáum við sama vaxtaumhverfi og önnur Norðurlönd og að held ég að hljóti að vera endamarkmið.“ Rangfærslan vakti nokkra athygli á samfélagsmiðlum í gær, en myndbandið er þó enn í birtingu. Margrét Rós brást við fréttaflutningnum á Facebook. „Svíar hafa notið góðs af aðild þeirra að ESB. Það er það sem ég meina - sænska krónan er ekki BUNDIN evru en hún er tengd evrunni að því leiti að viðskipti eru mikil milli evrusvæðisins og Svíþjóðar. Stýrivextir í Svíþjóð sveiflast líka líkt stýrivöxtum í Evrópu,“ skrifar hún. Svíar eru eitt af sex ríkjum Evrópusambandsins sem nota ekki evru. Upptöku evru var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu í landinu árið 2003. Á síðustu fimm árum hefur gengi sænsku krónunnar miðað við evru hæst farið í 0,10 evrur í nóvember 2021, en lægst í 0,082 í júní 2023. Þetta er í annað sinn sem myndband á vegum Sjá-hreyfingarinnar vekur athygli vegna rangfærslu. Í síðasta mánuði var því haldið fram í myndbandi hreyfingarinnar að lítri af mjólk kostaði 380 krónur á Íslandi og sú upphæð sett í samhengi við mjólkurverð í Evrópu. Hið rétta er að lítrinn kostar 234 krónur þar sem ódýrast er. Myndbandinu var eytt eftir að bent var á rangfærsluna. Sömu sögu er að segja af hreyfingunni Áfram Ísland, sem berst gegn aðildarviðræðum við ESB. Hreyfingin eyddi á dögunum myndbandi þar sem því var haldið fram að málskotsréttur forseta myndi heyra sögunni til ef Ísland gengur í ESB.

Share this article