Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bretar og Ítalir fylla í skarð Bandaríkjamanna

  • What: Travel statistics for Iceland
  • Impact: No security relevance
Read Full Article →

Samkvæmt tölum Ferðamálastofu og Isavia var samdráttur í brottförum erlendra farþega um 0,9% á fyrri helmingi ársins en fjöldinn var þó lítillega yfir spám. Þótt heildartalan hafi lítið breyst frá fyrra ári hafa orðið talsverðar breytingar eftir mörkuðum. Ferðamálastofa birtir upplýsingar um fjölda farþega eftir þjóðerni út frá úrtaksmælingu, sem er ætlað að gefa vísbendingu um þjóðernaskiptingu þeirra ferðamanna sem koma til Íslands. Bandaríkjamenn voru eftir sem áður langfjölmennasti hópurinn en brottfarir þeirra voru alls um 263 þúsund talsins á fyrstu sex mánuðum ársins. Þeim fækkaði þó heilt yfir um 8,6% milli ára. Bretar voru næst fjölmennastir en á fyrri helmingi ársins voru brottfarir þeirra rúmlega 128 þúsund, sem er aukning um 9,4% milli ára. Í febrúar voru brottfarir Breta fleiri en brottfarir Bandaríkjamanna. Þjóðverjar komu næst á eftir þar sem brottfarir voru um 60 þúsund en um er að ræða 7,3% samdrátt milli ára. Brottfarir farþega frá Kína, bæði meginlandinu og Hong Kong, voru tæplega 60 þúsund, sem er 13,4% aukning milli ára. Gríðarleg aukning var í brottförum Ítala, sem fara úr því að vera í áttunda sæti yfir stærstu þjóðernin árið 2025 yfir í fimmta sæti 2026. Brottfarir fóru úr tæplega 29 þúsund í 42 þúsund, sem er aukning um 46,1% milli ára. Samanlagt voru brottfarir þessara fimm þjóðerna tæplega 58% af öllum brottförum á tímabilinu. Halda að sér höndum í Ameríku Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair, varar þó við því að lesa of mikið í gögn Ferðamálastofu um þróunina þar sem um úrtaksgögn er að ræða og mælingar geti verið misáreiðanlegar. Að mati félagsins sé eftirspurn eftir Íslandsferðum almennt mjög sterk. Það hafi þó legið fyrir tiltölulega snemma í ár að eftirspurn frá Norður-Ameríku yrði lakari, bæði þegar kemur að tengifarþegum og farþegum til landsins. Samdráttinn megi meðal annars rekja til breytinga á leiðarkerfum og þess að dollarinn hafi veikst umtalsvert. Á móti kemur að eftirspurn frá Suður-Evrópu og víðar, ekki síst frá áfangastöðum sem Play sinnti áður, hefur verið að aukast. „Við erum aðeins að skipta yfir í meira Evrópuflug og halda að okkur höndum í Ameríkuflugi. En við sjáum engar stórar breytingar núna fram á við og erum heldur að halda áfram að vaxa inn í veturinn til þess að byggja undir heilsársferðamennsku,“ segir Tómas. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article