Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gallup: Þjóðin klofin í jafn stórar tvær fylkingar í ESB málinu

  • What: Gallup poll on Iceland's EU relationship
  • Impact: No security relevance
Read Full Article →

Íslendingar eru klofnir í afstöðu sinni til þess hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þetta sýnir ný Gallupkönnun sem framkvæmd var dagana 15.–30. júlí fyrir Rannsóknarmiðstöð samfélags- og efnahagsmála. Ef aðeins er litið til þeirra sem taka afstöðu segjast 50,1% myndu greiða atkvæði með því að hefja viðræður á ný, en 49,9% myndu greiða atkvæði gegn. Af þeim sem taka afstöðu segjast 38,9% vera „örugglega já“, 11,2% „líklega já“, 9,3% „líklega nei“ og 40,6% „örugglega nei“. Um 8,3% eru enn óákveðin. Þegar óákveðnir eru taldir sérstaklega með, en þeir sem segjast ekki myndu kjósa eru undanskildir, mælist stuðningurinn 45,8% en andstaðan 45,6%. Þá segjast 8,6% ekki hafa tekið afstöðu. Þeim hefur fjölgað sem ætla að segja nei í kosningunni 29. ágúst og eru fylkingarnar nú jafnar. Könnunin byggir á svörum 804 einstaklinga úr úrtaki 1.996 manna, 18 ára og eldri, og var þátttökuhlutfallið 40,3%. Gögnin voru vigtuð með tilliti til kyns, aldurs og búsetu þannig að úrtakið endurspegli þjóðina sem best.

Share this article