Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fjöldi tengi­farþega dregst saman um 16%

Read Full Article →

Icelandair flutti 599 þúsund farþega í júlí 2026 samanborið við 611 þúsund í sama mánuði árið áður, sem nemur 2% samdrætti milli ára. Þar af voru 42% á leið til Íslands, 19% frá Íslandi, 35% voru tengifarþegar og 4% ferðuðust innanlands. Í fréttatilkynningu félagsins segir að eftirspurn á lykilmörkuðum félagsins hafi áfram verið sterk í mánuðinum. Farþegum til Íslands fjölgaði um 7% á milli ára, farþegum frá Íslandi um 11% og þá jókst fjöldi farþega í innanlandsflugi um 8%. Á sama tíma dróst fjöldi tengifarþega saman um 16%. „Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá áframhaldandi vöxt á þeim lykilmörkuðum sem við leggjum áherslu á, sem undirstrikar sterka eftirspurn eftir ferðalögum til, frá og innan Íslands sem hafði jákvæð áhrif á tekjumyndun,“ segir Bogi Nils Bogason , forstjóri Icelandair Tekjur á hvern sætiskílómetra jukust um 12% á milli ára og voru 11,32 sent. Að sögn félagsins markar þessi árangur áherslu félagsins á arðbærustu markaðina á hverjum tíma og markvissrar leiðakerfisstýringar. Sætanýting var 88,8% samanborið við 88,2% í júlí 2025 og stundvísi var 77,1%. Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 8% og fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum, drógust saman um 9%.

Share this article