Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar tvö mál er varða stórfellt brot á lögum um ávana- og fíkniefni. Aðfaranótt 29. júlí stöðvaði tollgæslan á Keflavíkurflugvelli þrjá kólumbíska ríkisborgara sem komu hingað til lands frá Spáni. Við leit í farangri þeirra fundust pakkningar sem innihéldu 2,4 kíló af kókaíni. Hin grunuðu voru úrskurðuð í gæsluvarðhald til 5. ágúst. Eftir að lögreglustjórinn á Suðurnesjum fór fram á framlengingu gæsluvarðhalds úrskurðaði Héraðsdómur hin grunuðu í gæsluvarðhald til 12. ágúst. Degi eftir að Kólumbíumennirnir komu til landsins stöðvaði tollgæslan tvo ferðamenn sem einnig komu frá Spáni. Við leit í farangri þeirra fundust pakkningar sem innihéldu 1,7 kíló af kókaíni. „Pakkningarnar reyndust vera samskonar og þær sem lagt var hald á deginum áður í fórum þremenninganna. Hin grunuðu sem einnig eru kólumbískir ríkisborgarar voru úrskurðuð í gæsluvarðhald til dagsins í dag 6. ágúst og mun lögreglustjórinn á Suðurnesjum leggja fram kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Lögreglan vinnur að því að upplýsa um tengsl málanna. Hún veitir ekki frekari upplýsingar á þessu stigi málsins.
This article describes a law enforcement interdiction of a drug trafficking operation and does not contain information about a software vulnerability, threat, or technical attack vector. Consequently, none of the requested technical details such as CVSS scores, affected versions, or patches are applicable or provided. The content is a police report on physical contraband seizure, not a cybersecurity advisory.