- What: A man was sentenced to life in prison for driving a car into a crowd in Munich
- Impact: The attack resulted in two deaths and multiple injuries
Dómstóll í München í Þýskalandi dæmdi í morgun afganskan karlmann á þrítugsaldri í lífstíðarfangelsi fyrir að aka bíl inn í mannfjölda í borginni í febrúar í fyrra. Tveggja ára stúlka og móðir hennar létu lífið í árásinni og á fimmta tug særðust. Dómurinn úrskurðaði að brot mannsins teldust sérlega alvarleg, sem þýðir að mun erfiðara verður fyrir manninn að fá nokkru sinni lausn úr fangelsi. Maðurinn ók Mini Cooper inn í kröfugöngu á vegum stærsta verkalýðsfélags Þýskalands, Verdi. Bíllin stöðvaðist 23 metrum eftir að hann ók á fólkið því „framhjólin misstu snertinguna við jörðina vegna fólks sem lá fyrir framan og undir bílnum,“ að því er segir í ákærunni. Kom fylgdarlaus til Þýskalands 2016 Saksóknarar sögðu í réttarhöldunum að trúarlegar ástæður hefðu legið að baki verknaðinum. Hann hafi sagt „Allahu akbar“ eftir að hann ók á fólkið. Hann var þó ekki talinn tengjast skipulögðum hreyfingum íslamista. Verjendur mannsins höfðu farið fram á að hann yrði vistaður á geðdeild þrátt fyrir að dómskvaddir matsmenn hefðu metið hann sakhæfan. Maðurinn kom fylgdarlaus til Þýskalands árið 2016, þá fimmtán ára. Umsókn hans um hæli var hafnað en það kom ekki í veg fyrir að hann gæti búið og starfað í landinu. Að sögn lögreglu starfaði hann við öryggisgæslu og var virkur í bæði líkamsrækt og vaxtarrækt. Mánuðina fyrir árásina er talið að hann hafi orðið öfgasinnaður eftir að hafa horft á efni sem róttækir Afganar settu á netið.