Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

„Heimurinn er stærri en Novo Nordisk“

Read Full Article →

Novo Nordisk stendur nú frammi fyrir miklum áskorunum í samkeppni við bandaríska lyfjafyrirtækið Eli Lilly á vaxandi markaði fyrir lyfið GLP-1, þrátt fyrir að danska fyrirtækið hafi sjálft lagt grunninn að markaðnum með lyfjum eins og Ozempic og Wegovy. Fréttamiðillinn WSJ tók nýlega viðtal við Mike Doustdar í tilefni þess að eitt ár er nú liðið frá því að hann tók við sem forstjóri. Þar segir hann meðal annars að stærsta verkefnið hafi verið að breyta menningu fyrirtækisins. „Ég sé að starfsfólk vinnur nú betur saman, hugsar öðruvísi, bregst hraðar við og horfir meira út fyrir fyrirtækið. Heimurinn er stærri en Novo Nordisk og við höfum ekki einkarétt á bestu hugmyndunum,“ segir Doustdar. Nýjasti forstjórinn hefur starfað hjá Novo Nordisk í 33 ár en hann er jafnframt fyrsti forstjóri félagsins sem er ekki Dani. Sjá einnig Novo Nor­disk greinir frá grunnlaunum starfs­manna Að hans sögn er mikilvægt að greina mál vel en stundum verða skipulagsheildir lamaðar af endalausri greiningu og samstöðuleit. Doustdar hefur því lagt áherslu á meiri hraða í ákvarðanatöku og vill að starfsfólk beri fyrirtækið saman við helstu keppinauta frekar en að einblína á eigin sögu. „Við eigum ekki að spyrja hversu hröð við vorum áður, heldur hversu hratt aðrir hlaupa og hversu hratt þeir eru að nýta nýsköpun.“ Fjárfestar enn efins Þrátt fyrir að Novo Nordisk hafi farið fram úr væntingum markaðssérfræðinga í nýjustu uppgjörstölum og hækkað afkomuspá sína fyrir árið þá lækkaði gengi félagsins um tæplega 6% eftir birtingu uppgjörsins. Fjárfestar virðast enn efast um getu félagsins til að vinna aftur markaðshlutdeildina af Eli Lilly, sem hefur náð sterkri stöðu á markaði fyrir megrunarlyf. Doustdar telur að fyrirtækið þurfi nú að vinna sér aftur traust markaðarins. „Ég segi við mitt teymi að við eigum ekki að breyta neinu. Við eigum einfaldlega að halda áfram að skila árangri. Markaðurinn mun á endanum fylgja því eftir, við vitum bara ekki hvenær.“

Share this article