Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bandero-áhöfnin var talin vera hér í ólögmætum tilgangi

Read Full Article →

Útlendingastofnun metur að skipverjar á Bandero, skipi Paul Watsons samtakanna, hafi verið hér á landi í ólögmætum tilgangi og því var ákveðið að vísa þeim úr landi. Skipið hefur verið kyrrsett í Sundahöfn að beiðni Samgöngustofu síðan á föstudagsmorgun eftir að Landhelgisgæslan og sérsveit ríkislögreglustjóra tóku yfir stjórn þess í kjölfar þess að Bandero reyndi að hefta för hvalveiðiskipsins Hvals 9, skips Hvals hf og hlýddi ekki fyrirmælum Gæslunnar. Þetta herma heimildir fréttastofu, en Útlendingastofnun hefur ekki svarað fyrirspurnum um á hvaða grundvelli brottvísunin er byggð. Áhöfninni, alls 21 skipverja, var kynnt þessi ákvörðun í fyrrakvöld. Fólkið er frjálst ferða sinna innan höfuðborgarsvæðisins en þarf að sinna tilkynningaskyldu hjá lögreglu á hverjum degi. Brottvísun fylgir endurkomubann, fólkið kemur frá ýmsum löndum, ýmist innan eða utan Schengen-svæðisins, og því er bannið mislangt. Byggja á 98. greininni Samkvæmt heimildum fréttastofu er ákvörðun Útlendingastofnunar byggð á 98. grein útlendingalaga , þar sem segir meðal annars að heimilt sé að vísa útlendingi úr landi, sem sé án dvalarleyfis, sé það nauðsynlegt vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna, en ekki þótti sýnt að fólkið hefði sýnt fram á lögmæti dvalar sinnar. Embætti ríkislögreglustjóra hefur umsjón með brottflutningi fólksins. Engar upplýsingar fengust frá embættinu um hvernig honum yrði háttað, eða hvenær byrjað verður að flytja fólkið úr landi, en í tilkynningu sem send var í gær segir að heimferða- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra vinni að undirbúningi þess að flytja fólkið til síns heima. Það gæti tekið allt frá nokkrum dögum upp í nokkrar vikur.

Share this article