- What: Congo bans export of copper and cobalt
- Impact: Affects global supply chain for critical minerals
Lýðveldið Kongó hefur bannað útflutning á kopar- og kóbaltþykkni í því skyni að knýja fram meiri vinnslu hráefna innanlands og tryggja að stærri hluti verðmætasköpunarinnar verði eftir í landinu. Þetta kemur fram á vef Reuters en þar segir að bannið hafi ýtt koparverði upp á hæsta stig í rúmlega sex mánuði. Samkvæmt stjórnvaldsfyrirmælum hefur bannið þegar tekið gildi en hægt verður þó að biðja um undanþágur frá reglunum ef þær teljast þjóna stefnumarkandi hagsmunum ríkisins. Sjá einnig Hluthafarnir á bak við námuævintýrið í Tansaníu Kongó er stærsti framleiðandi heims á kóbalti og er jafnframt eitt mikilvægasta framleiðsluland kopars og annarra málma sem gegna lykilhlutverki í orkuskiptum. Stjórnvöld hafa hins vegar um árabil leitast við að byggja upp innlenda vinnslu málma í stað þess að flytja hráefni úr landi.