Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þorgerður krefst fullra yfirráða

Read Full Article →

Innlent | mbl | 6.8.2026 | 17:25 Þorgerður krefst fullra yfirráða Brussel Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sendir skilaboð til Brussel í viðtali við Financial Times. AFP/Nicolas Tucat Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra krefst þess að Ísland haldi fullum yfirráðum yfir öllum fiskveiðum komi til aðildarsamnings við Evrópusambandið (ESB). Ráðherrann setur kröfuna fram í viðtali við breska viðskiptablaðið Financial Times , sem fjallar í dag um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu hér á landi og þær hindranir sem gætu orðið í vegi aðildar Íslands að sambandinu. Orðalag ráðherrans er afdráttarlaust og bæði víðtækara og nákvæmara en komið hefur fram í fyrri yfirlýsingum hennar um samningsmarkmið Íslands í sjávarútvegsmálum. „Þegar kemur að fiskveiðum erum við stórveldi í Evrópu,“ segir Þorgerður Katrín við FT. „ESB verður að taka tillit til þess. Ef þeir gera það ekki verður mjög erfitt fyrir okkur að semja.“ Kvótakerfið verði áfram íslenskt Aðildarríki ESB geta sjálf ákveðið hvernig innlendum aflaheimildum er skipt á milli skipa og útgerða. Ísland gæti því haldið kvótakerfinu þótt landið gengi í sambandið. Aðild að ESB fæli hins vegar að óbreyttu í sér að Ísland hefði ekki lengur einhliða ákvörðunarvald um meðal annars heildaraflamark, verndun fiskistofna og aðgang að fiskimiðum. Þeir þættir falla undir sameiginlega sjávarútvegsstefnu sambandsins. Þorgerður Katrín segir slíkt ekki koma til greina. „Við verðum að halda fullveldisyfirráðum okkar yfir öllum fiskveiðum og auðvitað halda kvótakerfinu og kvótastjórnuninni,“ segir hún. Framkvæmdastjórn ESB hefur gefið til kynna að svigrúm kunni að vera fyrir sérlausnir eða undanþágur vegna íslensks sjávarútvegs. Embættismenn sambandsins vöruðu FT þó við því að full og formleg undanþága frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni væri mjög óvenjuleg. „Engin tvö aðildarferli eru eins. Hvert umsóknarríki er metið út frá eigin verðleikum og í samningaviðræðum er tekið tillit til sérstakra aðstæðna þess,“ segir talsmaður framkvæmdastjórnarinnar. Viðbúið er að sjávarútvegsmálin verði áfram veigamesta ágreiningsefnið fái ríkisstjórnin leyfi þjóðarinnar til þess að hefja á ný aðildarviðræðurnar við ESB frá 2010. Þorgeir Baldursson „Hluti af þjóðarímynd okkar“ Utanríkisráðherra telur aukið hernaðarlegt mikilvægi Íslands og sterka stöðu íslensks efnahagslífs gera stjórnvöldum kleift að ná hagstæðum samningi án þess að gefa eftir yfirráð yfir sjávarútveginum. Hún segir íslenskan sjávarútveg í grundvallaratriðum frábrugðinn sjávarútvegi núverandi aðildarríkja ESB. Sjávarafurðir námu tæpum 40% af útflutningsverðmæti Íslands árið 2024. „Við lifum öðruvísi lífi hér á Íslandi en á meginlandi Evrópu,“ segir Þorgerður Katrín. „Sjávarútvegur er hluti af þjóðarímynd okkar [...] Ég mun ekki undirrita samning sem er ekki góður fyrir Ísland.“ Hnífjöfn kosning fram undan Þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort hefja skuli aðildarviðræður við ESB á nýjan leik fer fram 29. ágúst, en samkvæmt könnun Gallup, sem birtist í Morgunblaðinu í morgun, eru fylkingarnar tvær hnífjafnar, 46% ætla að segja já og 46% að segja nei, en 8% eru óráðin. Fyrri aðildarviðræður Íslands og ESB voru formlega settar á ís af Össuri Skarphéðinssyni, þáv. utanríkisráðherra, árið 2013. Sjávarútvegsmál voru þá sem nú álitin erfiðasta ágreiningsefnið, en þegar viðræðurnar koðnuðu niður í lok 2012 hafði Ísland ekki einu sinni afhent samningsafstöðu sína í þeim efnum og sjávarútvegskaflinn var aldrei opnaður hvað þá meira. FT segir kröfur Íslands nú reyna á hversu langt ESB sé reiðubúið að ganga við að breyta eða sveigja sameiginlegar reglur sínar. Samkomulag við Ísland gæti jafnframt skapað fordæmi fyrir hugsanlegar framtíðarviðræður sambandsins við Noreg. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Reykur í blokk í Asparfelli Dagný Brynjarsdóttir komin heim Matvöruverð þrengir að bandarískum heimilum Thun – Víkingur kl. 18, bein lýsing Ísland úr leik eftir grátlegt tap Umræðan Þetta er einfaldlega rangt Rétt skal vera rétt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hnífjafnar fylkingar jás og neis „Gervigreindin gæti gert usla í meðalmennskunni“ Skýjað og súld vestan til en bjart fyrir austan NATO treystir á nýja tækni Mest lesið Í gær Í vikunni Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Hnífjafnar fylkingar jás og neis Enn tvö ár í að brúin yfir Ölfusá verði tekin í notkun Ók fram af fjögurra metra hengju Uppblásið leiktæki tókst á loft með barni innanborðs Fer aftur með rangt mál í myndbandi Já til að sjá Maður í haldi vegna andláts í heimahúsi Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Verndar ekki kynlífsverkafólk Dæmdur í fangelsi fyrir samræði við 13 ára stjúpsystur „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Já í ágúst gæti fest Ísland í ESB Vígja hjón án tilskilinna réttinda Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn Nýjast á mbl.is » Reykur í blokk í Asparfelli Dagný Brynjarsdóttir komin heim Matvöruverð þrengir að bandarískum heimilum Thun – Víkingur kl. 18, bein lýsing Ísland úr leik eftir grátlegt tap Umræðan Þetta er einfaldlega rangt Rétt skal vera rétt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Litið til almannaöryggis vegna brottvísunar „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Ný skýrsla um „raunverulegar viðskiptaþjóðir Íslands“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Hnífjafnar fylkingar jás og neis Enn tvö ár í að brúin yfir Ölfusá verði tekin í notkun Ók fram af fjögurra metra hengju Uppblásið leiktæki tókst á loft með barni innanborðs Fer aftur með rangt mál í myndbandi Já til að sjá Maður í haldi vegna andláts í heimahúsi Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Verndar ekki kynlífsverkafólk Dæmdur í fangelsi fyrir samræði við 13 ára stjúpsystur „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Já í ágúst gæti fest Ísland í ESB Vígja hjón án tilskilinna réttinda Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn

Share this article