Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stíf fundarhöld framundan hjá flugmönnum og Icelandair

Read Full Article →

Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, er hóflega bjartsýnn á framvindu kjaraviðræðna við Icelandair. Hann á von á að stíf fundarhöld séu framundan hjá ríkissáttasemjara í næstu viku. Samninganefndir undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu í júní um verkstýrða verkáætlun undir stjórn ríkissáttasemjara. Stefnt var að því að endurnýja kjarasamninga fyrir 15. september. „Við erum á sama stað og við vorum í júní,“ segir Jón Þór. Hann á von á að fleiri en einn fundur verði haldinn í komandi viku. „Það var uppleggið að leggja okkur fram við þetta.“

Share this article