Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Skotárás í taílenskum skóla: „Hvernig gat þetta gerst í landinu okkar?“

Read Full Article →

Forsætisráðherra Taílands segir skotárás í skóla norðan við Bangkok aldrei hafa átt að gerast. Átta voru drepnir í árásinni og 23 særðust. Árásarmaðurinn, sem var fjórtán ára gamall, lést meðan á árásinni stóð. Drengurinn skaut afa sinn og ömmu til bana með skammbyssu afa síns áður en hann hélt í framhaldsskóla í Nonthaburi-héraði. Þegar þangað var komið skaut hann þrjá kennara og þrjá nemendur til bana, að því er fram kemur í yfirlýsingu taílensku lögreglunnar. „Ég var hrædd um að ég myndi deyja og að ég fengi ekki tækifæri til að láta drauma mína rætast,“ sagði Pawarisa Maylissa, nemandi við skólann, í samtali við fréttaveitu AFP. „Ég heyrði marga háværa skothvelli og það virtist sem árásarmaðurinn væri á hæðinni beint fyrir ofan okkur. Ég heyrði meira að segja þegar byssukúlur skullu í gólfið.“ Grátandi nemendur og starfsfólk hugguðu hvert annað Fimmtán nemendur slösuðust þegar þeir reyndu að flýja en enginn þeirra varð fyrir skotum. Alls særðust 23 í árásinni. Lögreglan í Taílandi segir árásarmanninn hafa verið unglingspilt sem stundaði nám við skólann. Hann lést í árásinni en fjölmiðlum ber ekki saman um hvort hann hafi verið felldur af lögreglu eða hvort hann hafi tekið eigið líf. Fjölmennt viðbragðslið kom saman fyrir utan skólann í morgun, sem hafði verið girtur af. Að sögn fréttamanna á vettvangi biðu foreldrar í örvæntingu þar fyrir utan eftir því að sækja börnin sín. Grátandi nemendur og starfsfólk hugguðu hvert annað. Árásarmanninum lýst sem „vandræðabarni“ „Hann var yngri en ég en mér fannst alltaf eins og hann væri vandræðabarn,“ sagði Purin Kumchoo, 17 ára gamall samnemandi árásarmannsins, í samtali við fjölmiðla fyrir utan skólann í morgun. Litlu munaði að hann yrði fyrir skoti. „Vinir mínir sem þekktu hann sögðu að hann hefði áhuga á bandarísku alríkislögreglunni og skotvopnum og að margir aðrir nemendur hefðu lagt hann í einelti.“ Litlu munaði að Kumchoo yrði fyrir skoti í árásinni. „Þegar ég sá hann beina byssunni að mér fannst mér hann líta mjög fagmannlega út. Það var eins og hann hefði æft sig lengi,“ sagði Kumchoo. Hyggjast herða öryggisgæslu í skólum Anutin Charnvirakul, forsætisráðherra Taílands, sagði skotárásina aldrei hafa átt að eiga sér stað. „Þetta er hræðilegur atburður. Hvernig gat þetta gerst í landinu okkar?“ sagði Charnvirakul. Pasert Jantararuangtong, menntamálaráðherra landsins, hefur heitið því að öryggisgæsla í skólum verði efld. „Við höfum ekki kannað hvort nemendur komi með vopn í skólann. Öryggisgæslan hjá okkur er ekki mjög ströng,“ sagði ráðherrann þegar hann ávarpaði fjölmiðla í morgun. Stjórnvöld í Taílandi hafa áður lofað því að herða skotvopnalöggjöf landsins en litlum árangri hefur verið náð. Fleiri eiga skotvopn í Taílandi en í flestum öðrum nærliggjandi ríkjum. Talið er að um tíu milljónir skotvopna séu í umferð í landinu, eða eitt á hverja sjö íbúa.

Share this article