Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fjölbreytt dagskrá Hinsegin daga í dag

Read Full Article →

Innlent | mbl | 7.8.2026 | 11:36 Fjölbreytt dagskrá Hinsegin daga í dag Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga. Samsett mynd/mbl.is/Karítas Örn Óskar Pétursson Blöndal [email protected] Setja bókamerki Hinsegin dagar bjóða upp á fjölbreytta dagskrá í dag. Á meðal viðburða eru kökuskreytingarkeppni, samtal um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði, partísigling með plötusnúði frá Faxaflóahöfnum og kynslóðaspjall. Þetta segir Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga, í samtali við mbl.is. Frétt af mbl.is Páll Óskar: „Eins og að taka þátt í stórmóti“ Fyrsti viðburður dagsins er regnbogakökukeppni sem fer fram í Iðnó frá klukkan 13 til 14. Helga bendir á að allir 18 ára og yngri geti tekið þátt með því að mæta með köku. Í dómnefnd sitja Páll Óskar, Sigríður Hrefna, forstjóri Nóa Síríus, Eva Laufey Kjaran og Torfi. „Veitt verða verðlaun fyrir frumlegustu kökuna, mest hinsegin kökuna og metnaðarfyllstu kökuna. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem keppnin er haldin og alls konar kökur hafa litið dagsins ljós. Ungmennin leggja gríðarlega mikla vinnu í þetta og Nói Síríus hefur lagt til veglega vinninga,“ segir hún. Hinsegin dagar hafa staðið yfir alla vikuna. mbl.is/Karítas Staða hinsegin fólks á vinnumarkaði Hýr vinnumarkaður er samtal á vegum ASÍ, BHM, BSRB og KÍ um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði og mikilvægi hinsegin vottunar. Fundurinn fer fram í Iðnó frá klukkan 16 til 17. Á fundinum flytur Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur hjá Visku stéttarfélagi, erindi um efnahagslega stöðu hinsegin fólks. Þá fjallar Kári Garðarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna '78, um hinsegin vottun. Að erindum loknum fara fram pallborðsumræður með þátttöku Söru Daggar Svanhildardóttur, sviðsstjóra fræðslu- og upplýsingasviðs ASÍ, Hafþórs Óskarssonar grunnskólakennara, Irmu Alexöndru, forritara og atvinnurekanda, og Ernu Dísar Ingólfsdóttur, mannauðsstjóra Íslandshótela. Þorbjörg Þorvaldsdóttir, fyrrverandi formaður Samtakanna '78, stýrir fundinum. Frétt af mbl.is Myndir: Opnunarhátíð Hinsegin daga Partísigling Hinsegin dagar bjóða í samstarfi við Eldingu upp á litríka hinsegin siglingu. Viðburðurinn hefst með fordrykk á Slippbarnum klukkan 16.30 og um klukkan 18 verður haldið í klukkutíma siglingu frá Faxaflóahöfn þar sem DJ Linda þeytir skífum. „Þetta er bara partí. Það verður DJ um borð og fólk er bara að skemmta sér og dansa,“ segir Helga. Frétt af mbl.is Glaumur og gleði á regnbogahátíð Kynslóðaspjall í Iðnó klukkan 17:30. mbl.is/Karítas Fræðsluspjall í Iðnó Að lokum verður boðið upp á kynslóðaspjall í Iðnó frá klukkan 17.30 til 19.30. Þar verður rætt um upphaf fræðslustarfs Samtakanna '78 og hvernig það hefur þróast á undanförnum áratugum. „Þetta er alveg ofboðslega skemmtilegur viðburður. Hinsegin fólk er alltaf að eldast og yngjast. Fólk býr í jafnara samfélagi og treystir sér fyrr til að koma út úr skápnum. Á sama tíma er eldri kynslóð hinsegin fólks, sem hefur verið opin um sig í mörg ár, farin að nálgast eða komin á ellilífeyrisaldur. Það hefur einfaldlega ekki verið raunin áður. Ég held að þetta verði því mjög opið og skemmtilegt spjall,“ segir Helga. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bæjarstjóri í gæsluvarðhaldi vegna skógarelda Risastórt félag með mikinn metnað Fjölbreytt dagskrá Hinsegin daga í dag Ný plata eftir langa bið „Eins og hann hefði æft sig lengi“ Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Byggir ekki eingöngu á vísindalegu mati Telja undanþágur frá landbúnaðarstefnu ósennilegar Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ Pennavinurinn reyndist Churchill Kertum fleytt til minningar um fórnarlömbin Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Virkjunarleyfi í höfn Skipuð í dómaraembætti Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutning Lifandi dýr verði „rautt strik“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar Nýjast á mbl.is » Bæjarstjóri í gæsluvarðhaldi vegna skógarelda Risastórt félag með mikinn metnað Fjölbreytt dagskrá Hinsegin daga í dag Ný plata eftir langa bið „Eins og hann hefði æft sig lengi“ Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutning „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Fjölbreytt dagskrá Hinsegin daga í dag Ný skýrsla um „raunverulegar viðskiptaþjóðir Íslands“ Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ Pennavinurinn reyndist Churchill Kertum fleytt til minningar um fórnarlömbin Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Virkjunarleyfi í höfn Skipuð í dómaraembætti Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutning Lifandi dýr verði „rautt strik“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar

Share this article