Innlent | Morgunblaðið | 7.8.2026 | 13:53 Íbúum fjölgar í takt við aðflutninginn Akureyri. mbl.is/Þorgeir Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað um tveggja stafa tölur í stærstu sveitarfélögum landsins síðan um mitt ár 2020. Mest fjölgaði þeim hlutfallslega á Akureyri, í Árborg og í Garðabæ á þessu tímabili eða um ríflega 100%, eins og lesa má úr grafinu hér en vísað er í nýjar íbúatölur í lok 2. ársfjórðungs. Á þessum sex árum fjölgaði erlendum ríkisborgurum mest í Reykjavík, eða um 11.520. Með því voru erlendir ríkisborgarar orðnir 30.410 talsins í Reykjavík. Næstmesta fjölgunin var í Reykjanesbæ en þar fjölgaði erlendum ríkisborgurum um 2.580 og voru þeir orðnir 6.830 talsins um mitt þetta ár. Kort/mbl.is Hafnarfjörður í þriðja sæti Þriðja mesta fjölgunin var í Hafnarfirði en þar fjölgaði erlendum ríkisborgurum um 2.490 og voru þeir orðnir 5.480 um mitt þetta ár. Kópavogur var í fjórða sæti en þar fjölgaði erlendum ríkisborgurum um 2.020 á tímabilinu og voru þeir með því orðnir 5.500 um mitt þetta ár. Akureyri var í fimmta sæti en þar fjölgaði erlendum ríkisborgurum um 1.010 og voru þeir orðnir 1.960 um mitt ár. Garðabær var í sjötta sæti en þar fjölgaði erlendum ríkisborgurum um 870 og voru þeir með því orðnir 1.620. Árborg var í sjöunda sæti en þar fjölgaði erlendum ríkisborgurum um 790 og voru þeir orðnir 1.490 talsins. Mosfellsbær í áttunda sæti Mosfellsbær var í áttunda sæti en þar fjölgaði erlendum ríkisborgurum um 540 og voru þeir orðnir 1.450 um mitt þetta ár. Akranes var svo í níunda sæti en þar fjölgaði erlendum ríkisborgurum um 260 og voru þeir orðnir 870 um mitt þetta ár. Loks fjölgaði erlendum ríkisborgurum um 90 á Seltjarnarnesi á tímabilinu, í alls 440, en sveitarfélagið er hér tekið með til að loka hringnum á höfuðborgarsvæðinu. Samanlagt fjölgaði erlendum ríkisborgurum um 22.170 í þessum tíu sveitarfélögum frá öðrum ársfjórðungi 2020 til annars ársfjórðungs 2026. Til að setja það í samhengi fjölgaði erlendum ríkisborgurum samtals um 27.520 á landinu öllu á þessu tímabili, eða úr 43.610 í 71.130. Það þýðir að átta af hverjum tíu erlendum ríkisborgurum sem bættust við mannfjöldann settust að í þessum tíu sveitarfélögum. Einnig má nefna til samanburðar að íslenskum ríkisborgurum á landinu öllu fjölgaði úr 312.000 frá miðju ári 2020 í 325.370 um mitt þetta ár, eða um 13.370. Af þessu leiðir að erlendum ríkisborgurum fjölgaði tvöfalt meira en íslenskum á tímabilinu á landinu öllu. Myndi hækka hlutfallið Þessi samantekt nær til hins stærra höfuðborgarsvæðis en við það bætast smærri sveitarfélög eins og Hveragerði, Vogar og Grindavík. Að þeim meðtöldum myndi hlutfallsleg fjölgun erlendra ríkisborgara á hinu stærra höfuðborgarsvæði verða enn meiri sem hlutfall af heildarfjölguninni á landinu öllu. Það er því að ganga eftir sem ýmsir spáðu, að aðflutningur erlendra ríkisborgara myndi fyrst og fremst birtast í íbúafjölgun á hinu stærra höfuðborgarsvæði og jafnframt að margir þeirra myndu leita í ódýrara húsnæði utan dýrustu hverfanna á höfuðborgarsvæðinu. Flest bendir til þess að þessi þróun muni halda áfram. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Íbúum fjölgar í takt við aðflutninginn Tap gegn Ísrael í átta liða úrslitum Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? Noregur vill afsögn Infantinos Brákarborg tekin aftur til starfa við Kleppsveg Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samningur rann út 1. ágúst Fjölbreytt dagskrá Hinsegin daga í dag Íran hótaði að slökkva á Persaflóasvæðinu Litið til almannaöryggis vegna brottvísunar Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Kertum fleytt til minningar um fórnarlömbin „Evran gæti orðið meira en gildra“ Virkjunarleyfi í höfn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar Nýjast á mbl.is » Íbúum fjölgar í takt við aðflutninginn Tap gegn Ísrael í átta liða úrslitum Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? Noregur vill afsögn Infantinos Brákarborg tekin aftur til starfa við Kleppsveg Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð Telja undanþágur frá landbúnaðarstefnu ósennilegar Litið til almannaöryggis vegna brottvísunar Íran hótaði að slökkva á Persaflóasvæðinu Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Kertum fleytt til minningar um fórnarlömbin „Evran gæti orðið meira en gildra“ Virkjunarleyfi í höfn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar