Innlent | mbl | 7.8.2026 | 15:15 Inga: Börnin hafa beðið of lengi Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda „Það er áhyggjuefni“ Íslensk stjórnvöld setji stopp á nýja menntatækni Færir rök gegn notkun tækninnar við nám Hefur tæknivæðing skólakerfisins gengið of langt? Aldargömul umræða: „Við þurfum bara jákvæðni“ » Fleiri tengdar fréttir Einkunnir við lok grunnskóla verða gefnar í heilum tölum á bilinu 1–10 frá og með næsta vori í stað bókstafaeinkunna. Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segir breytingunni ekki aðeins ætlað að gera einkunnagjöf gagnsærri heldur jafnframt að auka jafnræði meðal nemenda í ólíkum skólum. Börnin hafi beðið of lengi. Breytingarnar verða innleiddar í tveimur áföngum. Fyrsti áfanginn tekur gildi vorið 2027 og nær til lokamats nemenda í 10. bekk. Annar áfanginn tekur gildi vorið 2028 og nær til lokamats í 4. og 7. bekk. „Við erum einfaldlega að svara ákalli þjóðarinnar, en það hefur verið mikil samstaða í samfélaginu um að koma með tölustafi í staðinn fyrir bókstafi,“ segir Inga. Hún segir markmiðið að gera kerfið gagnsætt og skiljanlegt fyrir nemendur, foreldra og skólasamfélagið allt. Frétt af mbl.is Hefja innleiðingu á einkunnum í tölustöfum Frétt af mbl.is Vill segja bless við bókstafina strax í sumar Mikið misræmi milli skóla Inga segir eitt helsta vandamálið við núverandi fyrirkomulag vera ósamræmi í einkunnagjöf milli skóla. Það geti haft bein áhrif á möguleika nemenda til að komast inn í framhaldsskóla þar sem ásókn er mikil. „Við höfum verið að sjá mjög mikið misræmi í því hvernig einkunnagjöf í bókstöfum er háttað á milli skóla. Það skilar sér í miklu ójafnræði á meðal nemenda þar sem kannski einstaka skólar eru með yfir helming af sínum nemendum með A í einkunn, sem þá eru um leið komnir með forgang inn í eftirsóttustu skólana.“ Frétt af mbl.is Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð Hún segir breytingunum ætlað að draga úr þessu ójafnræði. „Við erum að koma á jafnræði yfir allt landið. Það á ekki að mismuna börnum neins staðar og við erum að stíga inn sterk gegn slíku. Það eiga allir að skilja hvað einkunnin þýðir.“ Ráðuneytið hyggst samhliða breyta aðalnámskrá og skýra betur hvað eigi að liggja að baki einkunnum. Þar verður meðal annars kveðið á um vægi mismunandi námsþátta innan námsgreina við einkunnagjöf. Frétt af mbl.is Búseta og bakgrunnur hafa áhrif Í tillögu ráðuneytisins um íslensku í 10. bekk er til að mynda gert ráð fyrir að ritun vegi 30% af lokaeinkunn, bókmenntir 25%, talað mál 20%, lestur og lesskilningur 15% og mál og málnotkun 10%. „Aðalnámskráin okkar mun verða mjög skýr þannig að kennararnir vita nákvæmlega til hvers er ætlast og hvað þarf að liggja að baki einkunnagjöf,“ segir Inga. Með breytingunum verði þó ekki hægt að tryggja fullkomið samræmi milli skóla. „Auðvitað getum við aldrei tryggt algjöra samræmingu öðruvísi en að leggja alltaf fyrir sama prófið alls staðar, en þetta er samt mun meiri samræming en hefur verið í þeim matsviðmiðum sem eru í námskránni núna.“ mbl.is/Karítas Vill ekki endurtaka fyrri mistök Ráðuneyti Ingu leggur áherslu á að tölukvarðinn komi ekki í stað faglegs mats kennara á hæfni, framförum og stöðu nemenda. Skólar verða jafnframt hvattir til að nýta undirbúningstímann til að prófa sig áfram með tölukvarðann áður en breytingarnar taka að fullu gildi. Inga segir gott samtal hafa átt sér stað við hagaðila, þar á meðal Kennarasamband Íslands. Kennarar séu ekki mótfallnir því að tölur taki við af bókstöfum en mikilvægt sé hvernig breytingarnar verði innleiddar. „Ég held að það skipti kennaraforystuna mestu máli að þetta verði innleitt af skynsemi og kennararnir fái nauðsynlegan stuðning. Það er hugsun á bak við þetta allt.“ Hún segir ekki ætlunina að endurtaka það sem hún telur hafa farið úrskeiðis þegar núverandi námsmatskerfi var tekið upp. „Þessu verður ekki bara dembt á kennara án innleiðingar eins og var gert með núgildandi kerfi, þar sem allir enduðu í sínu horni að reyna að finna út úr hvernig ætti að vinna eftir því. Það er það sem hefur skapað þetta rosalega ósamræmi.“ Miðstöð menntunar og skólaþjónustu mun styðja skóla við innleiðinguna og hefur ráðuneytið einnig átt samtal við Samband íslenskra sveitarfélaga, Skólameistarafélag Íslands, Heimili og skóla og háskólasamfélagið. mbl.is/Karítas Heildarendurskoðun aðalnámskrár fram undan Þegar annar áfangi tekur gildi vorið 2028 verður tölukvarðinn einnig tekinn upp við lokamat í 4. og 7. bekk. Þá verður jafnframt ráðist í frekari endurskoðun greinasviða aðalnámskrár, meðal annars í stærðfræði, náttúrufræði og íslensku. Inga segir breytingarnar á einkunnagjöfinni aðeins hluta af stærra verkefni. „Aðalnámskráin er mjög svo stórt og öflugt verkefni fram undan. Í fyrsta lagi erum við að taka þessi litlu skref varðandi einkunnagjöfina en svo eigum við eftir að fara í heildarendurskoðun á henni.“ Hún segist ekki ætla að láta breytingarnar dragast úr hófi þótt áhersla verði lögð á vandaða innleiðingu. „Mér finnst börnin okkar hafa beðið allt of lengi á meðan hér hefur skapast ófremdarástand og það er gjörsamlega óafsakanlegt og óviðunandi fyrir blessuð börnin okkar.“ Hún bindur miklar vonir við að breytingarnar, ásamt öðrum aðgerðum stjórnvalda í skólamálum, svo sem símafríi og hærra aldurstakmarki á samfélagsmiðlum, skili sér í bættum árangri nemenda. Eftir næsta vor verða niðurstöður birtar í samanburði við vorið 2027. „Ég bind miklar vonir við að börnin okkar eigi eftir að blómstra og það ætlum við okkur. Börnin fyrst, svo allt hitt.“ Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda „Það er áhyggjuefni“ Íslensk stjórnvöld setji stopp á nýja menntatækni Færir rök gegn notkun tækninnar við nám Hefur tæknivæðing skólakerfisins gengið of langt? Aldargömul umræða: „Við þurfum bara jákvæðni“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Efnilegur markvörður semur við Fram Inga: Börnin hafa beðið of lengi Vilja Høiby áfram í gæsluvarðhaldi Ávaxtabakki með jarðarberja- og sítrónuídýfu Íslenskt lið í stórri keppni Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð Áslaug Arna ráðin til Fenris Creations í Lundúnum Inga: Börnin hafa beðið of lengi ESB mun semja fyrir okkur Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ Skipuð í dómaraembætti Pennavinurinn reyndist Churchill „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ „Evran gæti orðið meira en gildra“ Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu Kertum fleytt til minningar um fórnarlömbin Virkjunarleyfi í höfn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar Nýjast á mbl.is » Efnilegur markvörður semur við Fram Inga: Börnin hafa beðið of lengi Vilja Høiby áfram í gæsluvarðhaldi Ávaxtabakki með jarðarberja- og sítrónuídýfu Íslenskt lið í stórri keppni Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu „Evran gæti orðið meira en gildra“ Brottvísanir skipverja hafnar Áslaug Arna ráðin til Fenris Creations í Lundúnum Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ Skipuð í dómaraembætti Pennavinurinn reyndist Churchill „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ „Evran gæti orðið meira en gildra“ Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu Kertum fleytt til minningar um fórnarlömbin Virkjunarleyfi í höfn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar