Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Ísland er barskjaldað gagnvart erlendum áhrifaöflum í kosningabaráttunni

  • What: Concerns about political ads on social media during elections
  • Impact: Lack of oversight on online political content
Read Full Article →

Ekkert eftirlit er með pólitískum auglýsingum á samfélagsmiðlum hér á landi. Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar tekur undir áhyggjur eftirlitsnefndar ÖSE í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst. Bottar og djúpfalsanir á samfélagsmiðlum ríði röftum og greiðslur til baráttuhópa og áhrifavalda geti haft áhrif á niðurstöðu kosninganna. Erfitt að hafa eftirlit Lög um stafræna þjónustu hafa ekki verið innleidd hér á landi en það eru reglur sem eiga að gera stór netfyrirtæki og samfélagsmiðla ábyrgari fyrir því sem gerist á vettvangi þeirra, sérstaklega þegar kemur að ólöglegu efni, falsfréttum, netsvikum og pólitískum auglýsingum. Þetta er eitt af því sem eftirlitsnefnd á vegum ÖSE gerði athugasemdir við í skýrslu sinni um þjóðaratkvæðagreiðsluna. „Ég held að við megum búast við því og við sjáum það nú þegar að það er fullt af auglýsingum á samfélagsmiðlum og það er mjög erfitt að hafa eftirlit með þeim vegna þess að þetta eru ekki stjórnmálaflokkar. Þannig að það verður auðvelt fyrir pólitískar auglýsingar að fara undir radarinn,“ segir Elfa Ýr. Bottar og djúpfalsanir á samfélagsmiðlum Fjölmiðlanefnd hafi ítrekað óskað eftir skýrari lögum um hlutverk fjölmiðla í aðdraganda kosninga. „Og ég held að þetta skipti sérstaklega miklu máli núna þegar við erum ekki í hefðbundnum kosningum heldur í þjóðaratkvæðagreiðslu um ákveðið málefni. Það geta verið bottar sem eru að tjá sig og koma inn í umræðuna, djúpfalsanir og ýmislegt sem getur gerst,“ segir Elfa Ýr. Þetta sé viðkvæmara nú en áður því niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafi áhrif á alþjóðaviðskipti og alþjóðapólitík. „Og það er mjög auðvelt og ódýrt að bara kaupa sér umfjöllun, t.d. á samfélagsmiðlum.“ Elfa Ýr segir fjölmörg dæmi um að fjársterk öfl hafi lagt til fé og fleira til að hafa áhrif á niðurstöður kosninga í löndunum í kringum okkur. Það hafi verið gert með öllum mögulegum ráðum, fölsuðum hljóðbrotum, greiðslum til áhrifavalda o.s.frv. „Við vitum það að bæði varnarmál og ESB-mál eru stór mál sem eru þannig að margir hafa ákveðna hagsmuni og vilja hafa eitthvað um það að segja hvernig það gerist.“ Kemur ekki á óvart að fjallað sé um RÚV Miklar kröfur séu gerðar um óhlutdrægni RÚV sem áréttaðar voru í skýrslu ÖSE. „Og það er náttúrulega bara mjög óheppilegt ef einstakir stjórnarmenn eða starfsmenn RÚV eru að taka skýra afstöðu, svona bara varðandi trúverðugleika. Þannig að það kemur mér ekki á óvart að það skyldi hafa verið fjallað um þetta,“ segir Elfa Ýr.

Share this article