- What: False video about German chancellor's resignation circulates online
- Impact: Claims attributed to Russian intelligence-linked group
Yfirvöld í Þýskalandi telja hóp sem tengist leyniþjónustu rússneska hersins standa að baki fölsuðu myndbandi af Þýskalandskanslara sem fór í dreifingu á netinu. Í myndbandinu var því haldið fram að kanslarinn hygðist segja af sér. Í myndbandinu eru merki þýska ríkisfjölmiðilsins Deutsche Welle og viðskiptablaðsins Handelsblatt notuð. Þar er því haldið fram að gögn frá Kristilega demókrataflokknum CDU sýni fram á að Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, ætli að segja af sér í næstu viku vegna dvínandi fylgis flokksins í skoðanakönnunum. Báðir fjölmiðlar segja myndbandið falsað að öllu leyti. Upplýsingarnar í myndbandinu úr lausu lofti gripnar Í yfirlýsingu skrifstofu Merz segir að fullyrðingarnar í myndbandinu séu úr lausu lofti gripnar. Þær séu einfaldlega þvættingur sem ætlað sé að rugla fólk í ríminu. Heimildarmaður innan þýsku öryggisþjónustunnar segir líklegt að hópurinn Storm 1516 hafi búið myndbandið til. Hópurinn er talinn tengjast leyniþjónustu rússneska hersins. Hann býr til falsfréttir, upplýsingaóreiðu og reynir að hafa áhrif á stjórnmál innan vestrænna ríkja í þeim tilgangi að styðja við markmið rússneskra stjórnvalda. Sami hópur er einnig grunaður um að hafa dreift misvísandi upplýsingum í aðdraganda þingkosninga í Þýskalandi í febrúar á síðasta ári. Þá komst Merz til valda og myndaði ríkisstjórn ásamt Jafnaðarmannaflokknum. Í falsaða myndbandinu var sagt að Merz hygðist víkja fyrir Hendrik Wust, flokksbróður sínum, en fyrr á þessu ári veltu þýskir fjölmiðlar slíkri atburðarás upp. Höfundar myndbandsins gerðu þó augljós mistök í myndbandinu og vísuðu til sambandskosninga í september. Engar slíkar kosningar eru fyrirhugaðar. Þýsk stjórnvöld hafa áður sakað Rússa um að standa í herferð gegn ríkisstjórn landsins sem ætlað sé að grafa undan stuðningi Þýskalands við Úkraínu.