Innlent | Morgunblaðið | 7.8.2026 | 18:40 „Erfitt að sjá hvaða gloppur þarf að laga“ Gunnar segir að erfitt sé að sjá ástæðu til að breyta lögunum. Samsett mynd/Aðsend/Eggert Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Að mati Gunnars Sigurðarsonar, viðskiptastjóra á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins, er erfitt að sjá að ástæða sé til að gera breytingar á lögum um íslensk landshöfuðlén, þ.e. lén á netinu sem enda á „.is“. Á þriðjudag var sagt frá því á mbl.is að innviðaráðuneytið hefði opnað í samráðsgátt stjórnvalda kynningu um áform um breytingu á lögunum. Frétt af mbl.is Ráðherra vill breyta lögum um .is Skráning léna undir „.is“ hefur verið í höndum Internets á Íslandi hf. (ISNIC) sem er hlutafélag í einkaeigu. Lög um íslensk landshöfuðlén voru fyrst sett árið 2021 og segir í kynningu ráðuneytisins að sú lagasetning hafi miðast við að halda starfseminni óbreyttri og að eftirlitsúrræðum hafi verið stillt mjög í hóf. Ráðuneytið tiltekur m.a. að ISNIC hafi haft frjálsar hendur um flesta þætti starfseminnar, t.d. um gæði þjónustu, skráningarreglur, meðferð ágreiningsmála og verðlagningu. Þá segir jafnframt í kynningarskjalinu sem birt er í samráðsgátt að bent hafi verið á ýmislegt sem betur mætti fara varðandi lagaumgjörð íslenskra landshöfuðléna og ástæða sé til að bregðast við með því að gera úrbætur á löggjöfinni. Ráðuneytið vill gera breytingar til að stuðla að auknu öryggi, skilvirkni og hagkvæmri notkun á landshöfuðléninu og að stefnt verði að því að tryggja betur réttindi notenda og „stuðla að eðlilegri verðlagningu og skilvirkri úrlausn ágreiningsmála“. Þá vakir fyrir ráðuneytinu að stuðla að auknu trausti á íslenska landshöfuðléninu og draga úr hættu á misnotkun slíkra léna. Því þurfi að setja ákvæði um eftirlit með skráningarreglum og skilmálum, auka kröfur um upplýsingaöflun við skráningu léna og bæta heimildir lögreglu til að stemma stigu við brotastarfsemi sem tengist notkun léna. Valdheimildirnar nægar Gunnar Sigurðarson kveðst eiga erfitt með að koma auga á að þörf sé fyrir fleiri og strangari reglur og að núgildandi lög veiti t.d. fullnægjandi heimildir til inngripa ef íslenskt lén er notað í ólöglegum tilgangi. „Það er þegar mikið eftirlit með þessu sviði og aðgerða- og kæruferli til staðar, og núverandi regluverk er þannig að umgjörðin er bæði með ofboðslega mörg belti og mörg axlabönd,“ segir hann. „Af útskýringum ráðuneytisins er erfitt að sjá nákvæmlega hvaða gloppur í lögunum þarf nauðsynlega að laga.“ Gunnar bendir á að fyrir um tveimur árum hafi ráðuneytið reynt að gera breytingar á lögunum en þær tillögur hafi ekki orðið að veruleika. Þær breytingar sem núna eru til skoðunar virðast sambærilegar. Að sögn Gunnars er ekki ólíklegt að ráðuneytið sé að reyna að bregðast við atvikum sem komið hafa upp endrum og sinnum og jafnvel ratað í fréttir, þar sem erlendir aðilar opnuðu íslensk lén fyrir vefsíður þar sem hættulegum öfgaskoðunum var hampað eða glæpastarfsemi stunduð. Gunnar bendir hins vegar á að í þeim tilvikum hafi núgildandi regluverk þjónað sínu hlutverki vel og ekki sé annað að sjá en að bæði ISNIC og íslensk stjórnvöld hafi viðunandi valdheimildir. „Ráðuneytið þyrfti að útskýra betur hvaða raunverulegu vandamál eru til staðar sem gildandi lög taka ekki nægilega vel á,“ segir hann. Spurður um áhyggjur ráðuneytisins af gjaldskrá ISNIC segir Gunnar að íslensk landshöfuðlén séu vissulega dýrari en lén frá mörgum samanburðarlöndum, en sá munur geti átt sér eðlilegar skýringar, s.s. vegna stærðarhagkvæmni. Þá er ekki um mjög háa upphæð að ræða fyrir hvert lén og er árgjaldið hjá ISNIC í dag 7.680 kr. en ofan á það bætast 3.000 kr. fyrir lén sem innihalda íslenska sérstafi. Methagnaður var af starfsemi ISNIC í fyrra, eða 256 milljónir kr. Rekstrartekjur námu 571 milljón kr. og jukust um 8,3% á milli ára. Í byrjun sama árs keypti framtakssjóður á vegum Stefnis 74% alls hlutafjár í ISNIC og kaus hið opinbera að nýta ekki forkaupsrétt sinn. Árið 2025 voru rétt rúmlega 90.800 lén skráð undir „.is“ og fjölgaði þeim um liðlega 12.500 það árið. Lénin kosta meira í Bretlandi og Þýskalandi en minna á Spáni og í Portúgal Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Dagbjartur með afgerandi forystu Ási og Katrín ástfangin í Smáralind Hjólhýsi fauk á hliðina Íslandsmeistararnir styrkja sig „Erfitt að sjá hvaða gloppur þarf að laga“ Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutning Telja undanþágur frá landbúnaðarstefnu ósennilegar Velgengnin byggist á yfirráðum yfir auðlindinni Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Skipuð í dómaraembætti Pennavinurinn reyndist Churchill „Evran gæti orðið meira en gildra“ Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar Nýjast á mbl.is » Dagbjartur með afgerandi forystu Ási og Katrín ástfangin í Smáralind Hjólhýsi fauk á hliðina Íslandsmeistararnir styrkja sig „Erfitt að sjá hvaða gloppur þarf að laga“ Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Byggir ekki eingöngu á vísindalegu mati Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Fjölbreytt dagskrá Hinsegin daga í dag 14 ára drengur skaut átta til bana í Taílandi Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Skipuð í dómaraembætti Pennavinurinn reyndist Churchill „Evran gæti orðið meira en gildra“ Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar