Hitabylgjur og skógareldar í Suður-Evrópu eru farin að hafa áhrif á ferðavenjur Breta, sem leita í auknum mæli til svalari áfangastaða í Norður-Evrópu. Hátt í 58% breskra ferðamanna segjast líklegri til að velja áfangastaði sem eru með minni hita. Samkvæmt gögnum sem The Independent vísar til jókst sala ferðatrygginga vegna Íslandsferða um 18% á fyrri helmingi ársins miðað við sama tíma í fyrra. Sala trygginga vegna ferðalaga til Noregs jókst sömuleiðis um 24% og fór landið úr tíunda sæti í sjöunda sæti yfir vinsælustu áfangastaði breskra ferðamanna. Flugfélög hafa einnig fundið fyrir breytingunni en Ben Smith, forstjóri Air France-KLM, segir að ein stærsta breytingin að undanförnu hjá evrópskum ferðamönnum sé að þeir séu að færa sig frá svæðum sem glíma við mikinn hita og skógarelda.