Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Skilvirk og sanngjörn einkunnagjöf með tölustöfum

Read Full Article →

Mennta- og barnamálaráðuneytið hrindir í framkvæmd breytingum á námsmati í grunnskólum og tekur upp tölulegar einkunnir í stað bókstafseinkunna. Formaður Kennarasambandsins segir að bókstafir eða tölustafir séu ekki lykilmálið heldur samráð þeirra sem málið snertir. „Það hefur verið mikið ákall eftir þessu, það er mikið misræmi. Það er misræmi á milli skóla. Það er ójafnræði á milli skóla og það bitnar á börnunum okkar. Þannig að við erum að reyna að koma með gagnsæi og jafnræði á milli skólanna og meiri skilning og skilvirkni í einkunnagjöf þar sem bæði foreldrar og börn skilji einkunnina sína,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Menntamálaráðherra segir mikilvægt að tryggja samræmi í einkunnagjöf til að jafna tækifæri ungmenna til inngöngu í fyrsta vals framhaldsskóla. Tölustafir verða teknir upp í einkunnagjöf í stað bókstafa strax í haust. Innleiðing nýs einkunnakerfis barna í 10. bekk er hafin í ráðuneytinu og ætlunin er að breytingarnar fari inn í aðalnámsskrá í vetur. Í stað bókstafa verður geta barnanna metin með tölustöfum og Inga segir það gefa raunsærri mynd af því hvernig nemendur standi sig. Auðveldara verði fyrir starfsfólk framhaldsskóla að velja nemendur inn í námið því mikill tími fari í að umbreyta bókstöfum í tölustafi. Sum aldrei séð A og eigi enga möguleika „Þetta hefur náttúrulega verið miði þeirra, aðgangsmiði inn í framhaldsskólana, það er einkunnin sem hefur verið gefin í 10. bekk,“ segir Inga. „Það kom í ljós eftir að sérfræðingar okkar hér í ráðuneytinu fengu gögn um stöðuna í framhaldsskólanum almennt, og hvernig einkunnagjöf var gefin, að það voru til skólar sem gáfu jafnvel allt að 56% nemenda sinna A. Þessi 56% nemenda eru náttúrulega með forgang inn í framhaldsskólana og geta þar af leiðandi flest þeirra ratað í sitt fyrsta val á meðan að önnur ungmenni hafa yfir höfuð jafnvel ekki séð A og eiga litla sem enga möguleika.“ Bókstafir eða tölustafir skipti ekki höfuðmáli Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, segir bókstafi og tölustafi ekki skipta höfuðmáli. „Við hjá Kennarasambandinu höfum verið skýr með það að við teljum tölur og bókstafi vera birtingarmynd námskrár og námsmats. Stóra verkefnið er það að hlutirnir fái niðurstöðu námsmats, byggt á námsskránni þeirra og við treystum því að þetta verkefni sem er núna að fara í gang verði unnið í samráði við skólasamfélagið þannig að krakkarnir sem núna eru í 10. bekk og útskrifast í vor fái þá þjónustu sem þarf til þess að okkur takist að innleiða þessar breytingar á farsælan hátt,“ segir Magnús. Hann segir ráðuneytið og Kennarasambandið hafa átt samtöl í sumar. „Sem gefa okkur ákveðnar vonir og væntingar um það að verkefnið verði leyst með þeim hætti að það verði öflugt samráð og nú verðum við bara að treysta því að svo verði, af því að þetta verður að vera samráðsverkefni grunnskólans, framhaldskólans og ráðuneytisins.“

Share this article