Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fyrir umhverfið og bætta lýðheilsu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 7.8.2026 | 20:22 Fyrir umhverfið og bætta lýðheilsu Horft yfir Hvaleyrarvatn og bakkann þar sem heitir Sandvík, svæði sem er vinsælt til leikja. Handan vatns er Selhöfði, sem er skógi vaxinn með lúpínu í efstu brekkum. Í fjarska hægra megin á myndinni sést Keilir. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki „Magnað svæði,“ segir Jónatan Garðarsson skógræktarmaður. Á fallegum degi í ágúst er tekinn bíltúr um skógræktarlönd Hafnarfjarðar nærri Hvaleyrarvatni. Þar eru víðfeðmir skógar með lundum og fallegum rjóðrum. Í sumum þeirra hefur verið komið upp leikaðstöðu, grillborðum og fleiru sem gerir staðinn eftirsóknarverðan fyrir til dæmis fjölskyldur sem vilja njóta lífsins. Svona skógræktarsvæði eru við flesta þéttbýlisstaði landsins og þar mikilvæg fyrir umhverfi og bætta lýðheilsu. Mikilvægt útivistarsvæði „Við sáum vel í heimsfaraldrinum hve mikilvægur skógurinn hér er. Þá flykktist fólk hingað til að njóta útiveru svo sprenging varð í aðsókn og hún hefur haldist,“ segir Jónatan sem hefur tengsl við þetta svæði til áratuga. Hann er formaður Skógræktarfélags Íslands og stjórnarmaður í Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar en er flestum sjálfsagt best þekktur sem umsjónarmaður vinsælla útvarpsþátta á RÚV. Jónatan Garðarsson Leiðin á svæðið liggur frá Reykjanesbraut, um Kaldárselsveg undir norðanverðu Ásfjalli. Á vinstri hönd þar er Gráhelluhraun, svæði þar sem skógræktarstarf hófst árið 1946 jafnhliða því sem Skógræktarfélag Hafnarfjarðar var stofnað. Áður hafði verið talsvert gróðursett þarna í upplandi bæjarins, svo sem í Undirhlíðum nærri Helgafelli og þar nokkru sunnar þar sem heitir Stóri-Skógarhvammur. Þar voru fyrir og um miðja síðustu öld gjarnan að verki unglingar undir verkstjórn og leiðsögn kennara sinna. Kort/mbl.is Höfðaland heitir svæðið Sjónir manna beindust fljótt að því að gróðursetja í Vatnsendahlíð, svæði sem lá vel við en var gróðursnautt. Lúpínuræktun þar og fyllingar með hrossaskít skópu skilyrði til ræktunar sem hófst árið 1958. Síðan bættist Selhöfði við um 1980 en Seldalur, svæðið umhverfis Kjóadal og Klifsholt, 1990. Á síðastliðnum 36 árum hafa hundruð þúsunda plantna verið gróðursett á þeim slóðum sem einu nafni kallast Höfðar eða Höfðaland. Er það nafn dregið af örnefnum og kennileitum á þessum slóðum; Húshöfða, Selhöfða, Stórhöfða, Miðhöfða, Fremsthöfða og Þormóðshöfða sem nú er kallaður Langholt. Þöll Frá vinstri: Steinar Björgvinsson sem stýrir gróðrarstöðinni, Elías Eyfjörð og Vilhjálmur Breiðfjörð. mbl.is/Sigurður Bogi Rétt fyrir sunnan Hvaleyrarvatn er fyrrnefndur Selhöfði og þar fram hjá liggur vegurinn um Höfðaland; upp brekkur og um breiður. Ekið er á norðurbrún Seldals og svo aftur upp á Kaldárselsveg. Skógarbrautin er um fjögurra kílómetra löng og liggur um fallegt landslag þar sem hægt er að aka, ganga og hjóla. Göngustígar eru um skóginn og sífellt er verið að þétta leiðakerfið. Einnig er alltaf talsvert um að hestamenn feti þessar slóðir og Íshestar eru með beitarhólf í svonefndum Kjóadal. Þarna kemur til að aðstaða Hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði er þarna nærri og umhverfis skógræktarsvæðið eru reiðvegir. Þar er nú verið að útbúa nýja reiðleið sem með tíð og tíma nær alla leið suður í Krýsuvík. 300 landnemareitir Um 100.000 plöntur eru á ári hverju gróðursettar í Höfðalandi eða þar í kring. Þetta er ræktun frá gróðrarstöðinni Þöll, sem rekin er samhliða Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar sem sérstök rekstrareining og er þarna nærri. Gróðursetningunni er sinnt af sjálfboðaliðum og vinnuflokkum félagsins. Þá eru á svæðinu svonefndir landnemareitir; svæði sem til dæmis fjölskyldur, fyrirtæki og félög hafa í sinni umsjón. Alls eru spildur þessar um 300 talsins, eru ½-3 hektarar og hafa margar verið lengi í umsjón sömu aðila, sem þá sjá um að planta út á svæðinu og hirða um. Rétt utan við hið eiginlega skógræktarsvæði eru sumarbústaðirnir í Sléttuhlíð, margir í eigu heimafólks í Hafnarfirði. Hér er horft til suðurs og við blasir Helgafell, sem margir reyna sig við í heilsubótargöngum. mbl.is/Sigurður Bogi „Sitkagreni og fura hafa gert sig vel í skógunum hér. Birkið sömuleiðis og svo eru hér líka fallegir asparreitir. Reynirinn gerir sig líka vel og fjölgar sér hratt, þar sem fuglarnir éta berin af trjánum og í driti þeirra er frjó sem sáist víða,“ segir Jónatan. Kraftur úr grænum reitum Utan eiginlegs skógræktarsvæðis, norðan Kaldárselsvegar, er sumarhúsasvæðið í Sléttuhlíð sem er skógi vaxið. Fyrstu bústaðirnir þar voru reistir fyrir um öld, en oftar hafa ný hús verið reist á lóðinni, sem flest eru í eigu heimafólks í Hafnarfirði. „Af svæðinu hér ofan við bæinn var moldrok sem lagði yfir Hafnarfjörð. Nú hefur það verið stöðvað með skógrækt og veðurfar í bænum er breytt. Þá eru skógarnir bæði í Gráhelluhrauni og á Höfðum mikilvægt útivistarsvæði, grænir reitir þar sem fólk sækir sér kraft; fer út að ganga, hlaupa, hjóla eða sest niður með nestið sitt í lautarferð,“ segir Jónatan að síðustu. Við Hvaleyrarvatn eru leiksvæði sem fjölskyldufólk nýtir sér gjarnan á góðviðrisdögum. mbl.is/Sigurður Bogi Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fyrir umhverfið og bætta lýðheilsu Skoraði fernu í fyrri hálfleik Erlendir miðlar taka eftir Íslandsferð Trump Akureyrarliðið vann Framara Myndskeið: Fyrsti vélmennaskólinn í Kína Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Litið til almannaöryggis vegna brottvísunar ESB mun semja fyrir okkur Velgengnin byggist á yfirráðum yfir auðlindinni Áslaug Arna ráðin til Fenris Creations í Lundúnum Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Skipuð í dómaraembætti Pennavinurinn reyndist Churchill Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann „Evran gæti orðið meira en gildra“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar Nýjast á mbl.is » Fyrir umhverfið og bætta lýðheilsu Skoraði fernu í fyrri hálfleik Erlendir miðlar taka eftir Íslandsferð Trump Akureyrarliðið vann Framara Myndskeið: Fyrsti vélmennaskólinn í Kína Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Samningur rann út 1. ágúst Vilja bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði Áslaug Arna ráðin til Fenris Creations í Lundúnum Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Skipuð í dómaraembætti Pennavinurinn reyndist Churchill Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann „Evran gæti orðið meira en gildra“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar

Share this article