Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 7.8.2026 | 21:36 Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu 2023. Vegurinn upp á Bolafjall hefur verið í umræðunni að undanförnu en útsýnispallurinn á fjallinu hefur mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. mbl.is/Sigurður Bogi Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Vegurinn upp á Bolafjall á norðanverðum Vestfjörðum hefur af og til verið í umræðunni, nú síðast eftir að bíll valt þar. Betur fór en á horfðist eins og fram hefur komið. Í framhaldinu lýsti reyndur bæjarfulltrúi í Bolungarvík, Baldur Smári Einarsson, þeirri skoðun sinni í samtali við Ríkisútvarpið að þungt verði fyrir sveitarfélag að standa straum af viðhaldi og fleiri aðgerðum vegna vegarins eins og þeim sem tengjast öryggi vegfarenda. Vegurinn sé nú vegur upp á vinsælan áfangastað ferðamanna yfir sumartímann en útsýnispallurinn á Bolafjalli er einn þeirra staða á Vestfjörðum sem hvað mest hafa verið markaðssettir á síðustu árum. Heldur sjaldgæft er að sveitarfélag reki veg sem er utan bæjarkjarnans en sveitarfélögin reka götur innan bæja. Vegir á milli staða eru yfirleitt reknir af Vegagerðinni og undantekningar frá því eru einkavegir sem leyfi hefur fengist fyrir að gera. Forsaga vegarins upp á Bolafjall er óvenjuleg og verður því rakin hér í grófum dráttum. Lagður vegna ratsjárstöðvar Tildrög þess að ráðist var í að gera veg upp á fjallið á níunda áratugnum voru þau að einni af ratsjárstöðvunum, sem byggðar voru í samstarfi við bandaríska varnarliðið, var fundinn staður á Bolafjalli. Til að setja það í samhengi fyrir lesendur þá geisaði kalda stríðið milli austurs og vesturs og vildu stórveldin vera bæði með belti og axlabönd ef óvinaþjóð skyldi láta á sér kræla. Í því tilliti skipti staðsetning Íslands miklu máli. Flugmálastjórn og Landhelgisgæslan ásamt Póst- og símamálastofnun voru einnig með fjarskiptabúnað í ratsjárstöðvunum. 1988. Framkvæmdir við ratsjárstöðina á Bolafjalli í fullum gangi í júlí 1988. Úr safni Morgunblaðsins Vegurinn upp á fjallið var einkavegur og var rekinn af ríkisstofnuninni Ratsjárstofnun sem komið var á fót árið 1987 og heyrði undir utanríkisráðuneytið. Ratsjárstöðvarnar voru á forræði þeirrar stofnunar þegar samið var um að Íslendingur tæki við starfsemi ratsjárstöðvanna af varnarliðinu. Vegagerðin hefur aldrei haft umsjón með veginum upp á Bolafjall. Ratsjárstofnun var lögð niður árið 2008 og verkefni sem hún sinnti færð til í stjórnsýslunni. Tók þá Varnarmálastofnun við en var lögð niður ári síðar. Vegurinn heyrði síðar undir Landhelgisgæsluna og utanríkisráðuneytið þar til síðasta vor þegar ráðuneytið samdi við Bolungarvíkurkaupstað um að taka við rekstri vegarins. 1986. Vaskir menn við lagningu vegarins upp á Bolafjall í ágúst 1986. mbl.is/Gunnar Hallsson Nýjung í vegarlagningu Vinna við lagningu vegarins upp á fjallið hófst sumarið 1986. 19. ágúst árið 1986 tók Morgunblaðið púlsinn á gangi mála og þar skrifar Gunnar Hallsson, sem lengi var fréttaritari blaðsins í Bolungarvík: „Það sem er nýjung við þessa vegarlagningu er að vegkanturinn upp fjallshlíðina er að stórum hluta hlaðinn með svokölluðum „gabíónum“ eða kantstykkjum, sem eru kassaleg plastnet um 3 metrar á lengd, 1 metri á breidd og hæð. Þessum kössum er skipt í þrjú hólf þannig að hvert hólf tekur 1 rúmmetra af efni. Kassar þessir eru fylltir með unnu efni eða steinum sem eru af stærðinni 10-20 sm. Með því að nota þessi kantstykki er hægt að spara uppfyllingu og hafa vegkantinn brattari. Sömuleiðis fæst með þessu mun varanlegri vegkantur og minni hætta er á að efnið renni úr veginum.“ Verktakafyrirtækið sem einnig byggði ratsjárstöðina, JFE byggingarþjónusta í Bolungarvík, annaðist verkið. Suðurverk sá um sprengingar og Malarrif á Flateyri um mölun efnis. Verkfræðiþjónustan var í höndum verkfræðistofu Stefáns Ólafssonar í Reykjavík. 1985. Morgunblaðið segir frá áformunum hinn 25. júní 1985. Bandaríkjamenn borga Mikið var lagt í vegagerðina og þótti vegurinn góður í samanburði við ýmsa fjallvegi hérlendis á þeim tíma. „Þessi vegur er miklu betri en almennt gerist á vestfirskum fjallvegum,“ skrifaði blaðamaður Vestfirska fréttablaðsins til að mynda í grein í blaðinu 2. september 1993. Þá hafði kviknað hugmynd fyrir vestan um að gera útsýnispall á Bolafjalli og laða þannig að ferðamenn. Nokkuð sem varð að veruleika löngu síðar eða árið 2022. Af þeirri ástæðu tók Vestfirska fréttablaðið þáverandi forstjóra Ratsjárstofnunar tali, Jón Böðvarsson. Á þeim tíma var vegurinn lokaður almenningi og einungis þeir sem áttu erindi á ratsjárstöðina notuðu veginn yfir sumartímann. Á veturna þurftu starfsmenn Ratsjárstofnunar að nota aðrar leiðir. „Þetta er einkavegur sem liggur upp á fjall. Hann var lagður til þess að byggja og reka þarna ratsjárstöð. Þetta er spurning um bótaskyldu vegna hugsanlegra slysa og óhappa sem gætu hent á veginum og við þyrftum að greiða.“ Síðar í viðtalinu er haft eftir forstjóranum: „Bandaríkjamenn borga allt viðhald þessa vegar og ef átroðningur og viðhald á veginum verður meira af völdum annarra en umferðar Ratsjárstofnunar þá verður einhver annar að borga það.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Allt í einu á leiðinni til Liverpool Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Mosfellingar á toppinn – Fylkir fékk skell Þremenningum svall móður Nýtt lag North West vekur ugg Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samningur rann út 1. ágúst Byggir ekki eingöngu á vísindalegu mati Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð Vilja bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? Hjólhýsi fauk á hliðina „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Skipuð í dómaraembætti Pennavinurinn reyndist Churchill Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar Nýjast á mbl.is » Allt í einu á leiðinni til Liverpool Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Mosfellingar á toppinn – Fylkir fékk skell Þremenningum svall móður Nýtt lag North West vekur ugg Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Evran gæti orðið meira en gildra“ Samningur rann út 1. ágúst Áslaug Arna ráðin til Fenris Creations í Lundúnum Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? Hjólhýsi fauk á hliðina „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Skipuð í dómaraembætti Pennavinurinn reyndist Churchill Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar

Share this article