- What: Fire safety regulations in Iceland are updated for fire doors
- Impact: Affects building safety standards in Iceland
Innlent | Morgunblaðið | 8.8.2026 | 7:00 Breytt eldvarnarverklag veldur ama Brunavarnir Samkvæmt eldra fyrirkomulagi var brunaþol eldvarnarhurða reiknað út en nú þarf að staðfesta það með sérstökum prófunum erlendis. Morgunblaðið/Karítas Sveinn Valfells [email protected] Setja bókamerki Töluverð óánægja hefur verið meðal íslenskra hurðaframleiðenda og söluaðila vegna nýlegra verklagsbreytinga er snúa að staðfestingum á nothæfi brunahólfandi innihurða, en slíkar hurðir gegna lykilhlutverki við að takmarka útbreiðslu elds í mannvirkjum. Í ár lýkur tveggja ára aðlögunartíma að samevrópsku regluverki, þar sem kveðið er á um að allar tegundir af brunahólfandi innihurðum skuli vera prófaðar af viðurkenndum prófunaraðilum áður en þær eru teknar í notkun. Eldra fyrirkomulag laga um byggingarvörur kvað á um að fullnægjandi væri að reikna út brunaþol eldvarnarhurða án prófana. Engin aðstaða er fyrir hendi á Íslandi þar sem hægt er að framkvæma slíkar prófanir og þarf því nú að senda allar tegundir eldvarnarhurða til prófunar í Evrópu, með tilheyrandi kostnaði fyrir íslenska söluaðila og framleiðendur. Jón Sigurðsson, formaður Meistarafélags húsasmiða, telur rót vandans liggja í smæð Íslands og segir hann að illviðráðanlegt sé fyrir innlendan markað að standast allar þær kröfur sem settar séu með evrópskan markað í huga. „Hingað til hefur fyrirkomulagið verið þannig að eldvarnarhæfni hurðarinnar hefur verið reiknuð af brunahönnuði með undanþágu frá þessu regluverki í fjölda ára. Það er mín skoðun að gamla fyrirkomulagið eigi áfram að gilda því markaðurinn með hurðir hér á landi er svo lítill og íslenskir framleiðendur selja einfaldlega ekki nógu mikið til þess að standa straum af þeim kostnaði sem fylgir því að senda hurðir úr landi,“ segir Jón í samtali við Morgunblaðið. Hann telur þó ekki endilega við Evrópusambandið að sakast, þar sem löggjöfin er upprunnin, heldur segir hann þetta enn eitt dæmið um gullhúðun, þar sem íslenskir embættismenn séu of feimnir og tregir til að beita sér fyrir undanþágum þegar löggjöfin hentar ekki íslenskum aðstæðum. „Við erum allt of fljót að taka upp eitthvað sem hentar okkur ekki sökum smæðar. Það var ekki einu sinni látið reyna á það að sækja um undanþágu,“ segir Jón. Ekki gullhúðun að mati HMS Regína Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri brunavarna- og leigumarkaðssviðs Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS), vill ekki meina að umræddar kröfur séu dæmi um gullhúðun en hún segir að breyttu verklagi hafi vissulega fylgt nýjar kröfur fyrir íslenska framleiðendur. Sökum þess hafi HMS hafið svokallað aðlögunartímabil til þess að gefa markaðsaðilum rúmt svigrúm til að laga sig að nýja verklaginu og m.a. komið á fót sérstöku samstarfi við dönsku brunamála- og öryggisstofnunina til þess að auðvelda fyrirtækjum að prófa vörur sínar. „Við erum ekki að gera meiri kröfur en gerðar eru annars staðar innan Evrópu. Við erum einfaldlega að uppfylla Evrópuregluverkið sem hefur verið innleitt í byggingarreglugerð og lög um byggingarvörur og því er aðeins verið að gera ráð fyrir því að eldvarnarhurðir uppfylli viðurkennda staðla,“ segir Regína. Að hennar mati ætti umræðan því ekki að snúast um hvernig hægt sé að veita afslátt af þeim kröfum sem varða öryggi fólks, heldur hvernig hægt sé að styðja við íslenskan markað þannig að hann geti boðið upp á öruggar og traustar vörur sem standist þær kröfur sem gerðar eru til brunavarna í mannvirkjum. Áhersla HMS hafi því ekki verið á að slaka á öryggiskröfum heldur að tryggja að hægt sé að treysta þeim upplýsingum sem liggja að baki vörunum. „Þetta getur sannarlega verið flókið og því er afar eðlilegt að ræða hvernig best sé að útfæra framkvæmdina á litlum markaði eins og þeim íslenska. Við höfum því markvisst unnið að því að hjálpa íslenskum aðilum að aðlagast nýju verklagi og við munum áfram vinna að því,“ segir Regína að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Umdeild ESB-reglugerð áfram í gildi Breytt eldvarnarverklag veldur ama Sterk kynning á höfundarverki Karinar Sander Grillaðar kótelettur eins og þær gerast bestar „Það er allt frábært hjá okkur nema þessi börn og fyrrverandi“ Umræðan „hingað í sælunnar reit“ Vistvæn stefna í loftslagsmálum er lífsnauðsyn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áslaug Arna ráðin til Fenris Creations í Lundúnum Brottvísanir skipverja hafnar Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð Íran hótaði að slökkva á Persaflóasvæðinu Mest lesið Í gær Í vikunni Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Hjólhýsi fauk á hliðina Tölvan ekki lengur úr töskunni Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Myndir: Níu af bestu trukkum Páls Óskars Reykjanesbær kemur að útfararkostnaði Gunnars „Erfitt að sjá hvaða gloppur þarf að laga“ Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? Fyrir umhverfið og bætta lýðheilsu Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Hjólhýsi fauk á hliðina Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Nýjast á mbl.is » Umdeild ESB-reglugerð áfram í gildi Breytt eldvarnarverklag veldur ama Sterk kynning á höfundarverki Karinar Sander Grillaðar kótelettur eins og þær gerast bestar „Það er allt frábært hjá okkur nema þessi börn og fyrrverandi“ Umræðan „hingað í sælunnar reit“ Vistvæn stefna í loftslagsmálum er lífsnauðsyn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samningur rann út 1. ágúst Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð Velgengnin byggist á yfirráðum yfir auðlindinni Mest lesið Í gær Í vikunni Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Hjólhýsi fauk á hliðina Tölvan ekki lengur úr töskunni Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Myndir: Níu af bestu trukkum Páls Óskars Reykjanesbær kemur að útfararkostnaði Gunnars „Erfitt að sjá hvaða gloppur þarf að laga“ Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? Fyrir umhverfið og bætta lýðheilsu Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Hjólhýsi fauk á hliðina Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“