Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hversu dýr var spá Stormsins?

Read Full Article →

Veðurguðirnir fóru óvenju blíðum höndum um landsmenn nýafstaðna verslunarmannahelgi. Þrátt fyrir að gestir útihátíða víða um land séu alsælir með veðurblíðuna stendur Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi Stormur, nokkuð óvænt uppi sem skúrkur verslunarmannahelgarinnar. Þannig greindi Vísir frá því að skipuleggjendur útihátíða á Norðurlandi væru „búnir að fá sig fullsadda af glæfralegum yfirlýsingum veðurspámanna að sunnan“ og var Siggi Stormur sérstaklega nefndur í því samhengi. Sá hafði unnið sér það til saka að spá rigningu fyrir norðan en spáin rættist blessunarlega ekki. Skipuleggjendur báru sig illa og sögðu tap veðurspárinnar hlaupa á milljónum fyrir sveitarfélögin. Ákveði þeir að fara með málið lengra og láta framkvæma greiningu á kostnaði sveitarfélaga vegna ótímabærra veðurspáa telja hrafnarnir einsýnt að Páll Gunnar Pálsson og samkeppnisstofnun hans verði fengin til verksins. Að sjálfsögðu fengi hin fjársvelta stofnun viðbótarfjárveitingu upp á nokkra tugi milljóna til að geta sinnt verkefninu af kostgæfni. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article