Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Ég get þetta ekki lengur“ segir ung transkona sem var grýtt eftir gleðigöngu Hinsegin daga

  • What: A transgender woman shares her experience of being harassed and threatened in Iceland
  • Impact: Highlights ongoing issues of discrimination and hate crimes against transgender individuals
Read Full Article →

Transkonan Sindri „Sparkle“ Freyja Bjarnabur segir þolinmæði sína á þrotum eftir að hafa verið grýtt á leiðinni heim ásamt eiginmanni sínum eftir Gleðigöngu Hinsegin daga í gær. Hán segir í myndbandsfærslu á samfélagsmiðlum fimm unga menn hafa staðið við hús í Vesturbænum þar sem þau áður bjuggu og tekið „þá ákvörðun að það má bara drepa transfólk á götunni“. Þeir hafi forðað sér á hlaupum áður en hjónunum tókst að hringja í lögreglu og því ekkert hægt að gera í málinu. Sindri Freyja segist oft verða fyrir aðkasti fyrir það eitt að vera trans, hán hafi fyrst verið beitt líkamlegu ofbeldi árið 2020 og oft sé öskrað á hán á götum úti. Hér fyrir neðan má sjá færsluna: Sindri Freyja lýsir einnig atviki sem gerðist fyrir þremur vikum þegar ungur maður veifaði hjólabretti sem vopni og kallaði transfólk „djöfla“. „Fólk vill ekki trúa því að þetta sé svona í raun og veru. Ekki á Íslandi, ekki árið 2026. En þetta er staðan á landinu og hún hefur verið að stigmagnast ár eftir ár og samt er fólk alltaf í afneitun.“ Hán hafi lengi reynt að sannfæra fólk um að til séu Íslendingar sem hati transfólk, fordómarnir séu raunverulegir og hættulegir. „Ég get þetta ekki lengur,“ segir Sindri Freyja og segist vilja að fólk trúi því að transfólk sé í raunverulegri hættu. „Ég get ekki þóst að það sé allt í lagi með mig.“ Sindri „Sparkle“ Freyja Bjarnabur var með uppistandssýninguna Pláss fyrir alla: Regnbogafánar fyrir byrjendur og lengra komna í Tjarnarbíói í vor. Þar rakti hán sögu ýmissa fána á gamansaman hátt sem tengist lokaverkefni í grafískri hönnun.

Share this article