Grafa og Grjót - Invit hagnaðist um 662 milljónir króna í fyrra, samanborið við 227 milljónir árið áður. Tekjur samstæðunnar námu tæplega 4,3 milljörðum, sem er aukning um 35,5% milli ára. Í ársreikningi segir að verkefnastaða félagsins fyrir árið 2025 og inn á árið 2026 hafi aldrei verið jafn sterk. Stjórn leggur til að 500 milljónir verði greiddar í arð. Stærsti hluthafinn, framtakssjóður í stýringu Alfa Framtaks, metur að virði fyrirtækisins sé 6 milljarðar króna. Lykiltölur / Grafa og Grjót - INVIT ehf. 2025 2024 Tekjur 4.282 3.159 Eigið fé 2.549 1.916 Eignir 3.322 2.565 Afkoma 662 227 - í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .