Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Frá bókun til brottfarar

Read Full Article →

GreenKey sérhæfir sig í rekstrarþjónustu fyrir hótel og gististaði og tekur að sér allan eða hluta af daglegum rekstri. Meðal verkefna fyrirtækisins eru verðstýring, bókunarkerfi, gestasamskipti, þrif, þvottur og viðhald, ásamt því að þróa tæknilausnir sem einfalda reksturinn. „Í stuttu máli sjáum við til þess að vélin gangi og eigandinn fái betri yfirsýn yfir reksturinn,“ segir Guðmundur Árni Ólafsson, rekstrarstjóri og einn stofnenda. Þótt GreenKey byggi á sjálfvirkni og gervigreind segir Guðmundur Árni að fyrirtækið sé fyrst og fremst rekstraraðili sem sameini tækni og þjónustu. „Við erum hvorki eingöngu hugbúnaðarfyrirtæki né hefðbundið rekstrarfélag. Við tengjum tæknina en erum líka með þvottahúsið sem sinnir þvottinum, fólkið sem svarar gestinum, þrífur herbergið og mætir þegar eitthvað kemur upp,“ segir hann. Hann segir fyrirtækið hafa byggt upp eigin rekstrarinnviði samhliða þróun tæknilausna og því geti það tekið að sér bæði dagleg verkefni og innleiðingu nýrra verkferla. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article